Færsluflokkur: Stjórnmál og samfélag

Tinna vel að starfinu komin

Jafnvel þó að vinkona mín Silja Bára hafi ekki fengið embættið fagna ég ráðningu Tinnu sem ég þekki vel úr menntaskóla. Hún er stólpamanneskja (og ég meina það jákvætt) og hefur staðið sig vel þar sem hún hefur starfað. Það er alltaf erfitt að velja þegar að mikið er um hæfileikafólk sem sækir um einu og sömu stöðuna. Mér fannst persónulega skemmtilegast að Stefán Pálsson formaður herstöðva-andstæðinga sótti um. Það hefði auðvitað verið frétt til næsta bæjar hefði hann hreppt starfið. Fyrir nöldrara er gott að muna að allir ættu að hafa rétt á að sanna sig í nýju starfi. Bíðum því með að dæma og leyfum nýjum starfsmanni að sanna sig á nýjum vettvangi.
mbl.is Skipuð forstjóri Varnarmálastofnunar
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Foreldrar þurfa að bera virðingu fyrir hvort öðru, sleppa eigingirninni og gerast víðsýnni

Alhæfingar og dogma um sameiginlegt forræði eru hættulegar. 

Ef að virðing foreldra fyrir hvort öðru er til staðar og mömmur og pabbar leggja eigingirni sína til hliðar þarf forsjá beggja foreldra ekki að vera vandamál.

Það er hinsvegar oftast þannig að skilnaðir eru sárir og í þeim tilfellum þar sem að t.d faðir hverfur um nokkurra mánaða skeið úr lífi barns síns vegna þess að hann getur ekki tekist almennilega á við skilnaðinn eða er of upptekinn af nýju konunni í lífi sínu er spurning hvað á að gera. Oftast er það svo að móðirin ber þungann af barnauppeldi þó dæmi séu um að slíku sé öfugt farið.

Ég á tvö börn, annað barnið er barn sem ég er með sameiginlegt forræði með föðurnum og hefur gengið ágætlega með meira að segja þvert á þjóðleg landamæri. Við erum ágætis vinir ég og faðirinn, reyndar bara svona eins og gömul systkini næstum því (auðvitað er stundum nöldur í gangi en er það ekki hvort eð er á flestum heimilum). Ég er nú stödd í Danmörku en hann býr í íbúðinni minni með stráknum á Íslandi þessa vikuna. Ástæðan fyrir því að hægt er að halda slíku fínu sambandi er að kona míns fyrrverandi er í alla staði frábær, og hún er góð vinkona mín í ofanálag. Slíku hefur því miður ekki verið fyrir að fara þegar ég hef átt kærasta. Það hefur allt einhvern veginn verið viðkvæmara og ég þurft að tipla á tánum vegna þessa.

Makarnir hafa því talsvert um sambönd að segja. 

Ég á annað barn sem að ég er ekki með sameiginlegt forræði yfir með föðurnum. Ástæða þess var sár skilnaður þar sem aldrei var talað út um mál. Það er hinsvegar orðið svo langt um liðið að við verðum að leggja það sem átti sér stað þá að baki.

Sonur minn býr tímabundið hjá pabba sínum á meðan ég er erlendis. Hann hefur verulega gott af því að ná að kynnast pabba sínum betur en um helgar. Mér heyrist að það gangi allt vel þó ég sakni hans alveg ofboðslega. Það getur því orðið nýr og sterkur grunnur að betri samskiptum milli þeirra feðga og auðveldara samráði milli okkar foreldra til framtíðar. 

Það sem oft gleymist í þessari umræðu allri er að foreldrahlutverkið er ekki eignarhaldshlutverk. Maður verður að sleppa krampakenndum tökum á barninu gagnvart hinu foreldrinu.

Fólk verður bara að leggja drottnunargirni til hliðar þegar kemur að börnunum. Við erum með börnin okkar til láns og okkur ber að virða þau og bera hag þeirra fyrir brjósti líka gagnvart hinu foreldrinu....Og ég endurtek alhæfingar um sameiginlegt forræði vs. forræði eins foreldris eru varhugaverðar vegna þess að aðstæður eru verulega mismunandi.  

 


mbl.is Fjallað um foreldrajafnrétti í nýrri skýrslu
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Stormur í vatnsglasi

Umræðan um hvort trúarleg  eða pólitísk tákn séu viðeigandi í klæðnaði opinberra embættismanna og þá sérstaklega dómara, lögreglu og herliðs er það sem umræðan í raun hefur snúist um í Danmörku. Ástæðan fyrir því að þessir starfshópar eru sérstaklega teknir fyrir og um þau eiga lög að gilda, er að þessar starfstéttir taka ákvarðanir og hafa völd og það væri mjög annarlegt ef að ekki væri hægt að treysta að dómar þeirra eða dómgreind væri óháð trúarbrögðum eða pólitík þegar hamarinn fellur. Ég er nokkuð viss um að margir myndu nú segja, já en er hægt að vera óháður. Já, það er hægt að forgangsraða og skilja á milli hvað er undirorpið trúarlegum eða pólitískum áherslum.

Slæðumálið svokallaða er tilraun ýmissra flokksafla og fjölmiðla til að færa umræðuna niður á miklu lægra plan en hún á í raun skilið og eftir að hafa lesið króníku Birtu R. Hornbech skil ég vel afstöðu hennar.  Málið snýst ekki um slæður!!!! Alveg eins og að innflytjendamálefni snúast ekki um islamiseringu, þó að hægt væri að halda það eftir umræður síðustu sex ára.

Það hafa margir talað um að forsetisráðherra danaveldis sé svolítið kontrol freak eins og vill brenna við menn sem eru metnaðarfullir og með fullkomnunaráráttu. Mér finnst framganga hans í þessu máli endurspegla að það sé ekki sama hvort það sé Jón eða séra Jón sem talar. Á meðan að uppáhalds-erfðaprins hans Lars Lökke á í verulegum erfiðleikum með að svara fyrir fjárhagsmisferli í fyrra starfi og Andes Fogh skautar yfir það eins og fjölmiðlar séu á sérstökum nornaveiðum eftir manninum, eru málefnalegri innlegg gagnrýnd harðlega frá hans hendi, eins og þetta mál er lýsandi dæmi um.


mbl.is Dönsk stjórnmál á suðupunkti
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Frægðarför í rússneska sendiráðið

Ég er búin að bíða í óratíma eftir opinberu boði til Rússlands, eftir um mánaða bið kom það svo með hraðpósti DHL og ég gat drifið mig í rússneska sendiráðið hér í Kaupmannahöfn til að sækja um vegabréfsáritun. Rússar hafa fyrir löngu áttað sig á að það borgar sig að hafa féþúfu úr vegabréfsáritunum og því skemur sem sótt er um fyrir brottför þess dýrara er að fá áritunina. Þegar ég mætti í Kristianiagade var biðröð langt út á götu. Röðin hreyfðist varla. Einn og einn komst inn í einu og ég sá fyrir mér að það yrði skellt á nefið á mér því lokun var boðuð strax um 11.30.

Og mikið rétt. Klukkan 11.30 kom vörðurinn út og sagði að sendiráðið væri nú lokað, fólk sem ekki hefði komist að þyrfti bara að mæta eftir helgi. Ég var í sjokki þegar að um tugur fólks hvarf vonsvikinn frá. Tveir menn sem höfðu verið framarlega í röðinni ætluðu ekki að láta þar við standa og stóðu þrjóskulega við dyrnar sem nú voru læstar. Ég fór upp tröppurnar að húsinu og spjallaði við þá. Þetta voru menn frá danska útvarpinu sem sendir höfðu verið með passa starfsfólks sem átti að dekka einhvern viðburð (örugglega fótbolta eða eitthvað ámóta ómerkilegt!haha). Þeir voru með kontaktmanneskju í sendiráðinu sem þeir hringdu í og hún kom út til að ræða við þá á tröppunum. Þrátt fyrir ýmsar röksemdir tvímenningana gaf hún sig ekki. Ég sneri mér þá að konunni og setti upp mitt valdmannslega íslenska fas og kvaðst hafa beðið óratíma eftir opinberu boði (sem ég veifaði framan í hana) og ég væri alveg farin að örvænta hvort ég fengi nokkuð þessa blessuðu áritun sem væri nauðsynleg. Þegar ég sagðist í ofanálag vera íslenskur ríkisborgari breyttist allt hennar fas og ég sveif inn um dyrnar eins og ekkert væri á meðan að hurðinni var skellt á nefið á vonsvikna DR mennina.

Þegar inn var komið fékk ég nánast konunglegar móttökur og afgreiðslan á árituninni gekk svo greiðlega fyrir sig miðað við aðra sem sátu og biðu inni að ég hálf skammaðist mín.

Fyrir þá dani sem virkilega aðhyllast samsæriskenningar og trúa enn að tengsl séu milli íslendinga og rússnesku mafíunnar var þetta vatn á mylluna. Ég var sjálf auðvitað dauðfegin að fá afgreiðslu og ódýrari vegabréfsáritun en danirnir frændur okkar.

Hvort sem það var opinbera boðsbréfið sem var svona fallega orðað, ríkisborgarastatus minn eða valdsmannlegt fasið  sem hafði svona hressileg áhrif á starfsfólkið mun ég sjálfsagt  aldrei komast að, en það gekk. Fegin er ég. 

Ég vorkenndi bara dönunum greyunum sem máttu fara fýluferð í morgun í sendiráðið. 


Sjaldan er ein báran stök

Ég fór inn á heimasíður WMO (alþjóða veðurfræðisamtakanna) til að athuga hvar fellibyljaaðvaranirnar eru. Það kom í ljós að fleiri storm- og fellibyljaaðvaranir eru á svæðinu. 

tropicalcyclons Veðurfræðisamtökin eru á vegum sameinuðu þjóðanna og halda úti upplýsingum á netinu um veðuraðvaranir af ýmsu tagi, og meðal annars sérstaklega um hitabeltis-fellibylji.

Þar eru rauntímaupplýsingar (frá flestum svæðum heims).

Síðan heitir Severe weather 

Ég vona svo sannarlega að íbúar Myanmar (fyrrum Búrma) þurfi ekki að upplifa enn einar hamfarirnar nóg er nú um, en því miður er sjaldan ein báran stök í þeim efnum. 


mbl.is Annar fellibylur ógnar Búrma
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Gott hjá Gísla!

Gaman að sjá Gísla, gamlan félaga úr stjórn námsmannafélagsins í Kaupmannahöfn (nú Stúdentafélagið) leggur sitt af mörkum í viðbragðsáætlunum vegna þessara hræðilegu náttúruhamfara í Myanmar.

Danskar sjónvarpsstöðvar greindu frá því í gærkvöldi að orkukexið sem sent var úr norðurhöfninni fyrir fjórum dögum síðan (á vegum unicef) en hafði verið gert upptækt af fulltrúum herforingastjórnarinnar við komuna til Rangoon, er nú loks frelsað úr geymslum lagersins á flugstöðinni.

Fyrsti rauða kross báturinn sigldi af stað með það en sökk á leiðinni vegna erfiðleika með að komast um flóðasvæðið. Allar þær hundruð þúsunda vatnshreinsandi taflna sem sendar voru héðan af kastrup velli í vikunni hafa enn ekki náð til fólksins (eftir því sem næst verður komist).

Það er vonandi að Gísla takist að lesa rétt úr stöðunni, manni skylst að mikið beri í milli opinberrra miðla og t.d búrmanskra flóttamanna sem vinna við fjölmiðla á vesturlöndum í frásögnum frá afleiðingum stormsins. Og þá er vert að nefna ef það hefur ekki komið fram heima að norræna ráðherranefndin og þarmeð íslensk stjórnvöld eiga þátt í að halda úti alternativri útvarps- og sjónvarpsstöð í gegnum gervihnött og hún miðlar dálítið öðrum fréttum en fulltrúar herforingjastjórnarinnar. Fréttastofan er staðsett í Osló og þar vinna um 15-20 X-búrmesar.

 


mbl.is Íslendingur stýrir stuðningi Microsoft við Búrma
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Lýðræðisþróun Evrópusambandsins

Nú er búið að lappa upp á stjórnaskrá Evrópusambandsins sem nú heitir Lissabon samningurinn og mun yfir sumar Evrópusambandsþjóðirnar ganga án þjóðaratkvæðagreiðslu. Frakkar fóru jú flatt á því að treysta eigin þjóð til að kjósa um málið (eins og sú þjóð hefur nú alltaf aðhyllst stóru skrefin í framþróun Evrópusamstarfsins).

Það er margt í lýðræðisþróun Evrópusambandsins sem ætti að vekja fólk til umhugsunar um hvaða stórveldi menn vilja ganga inn í og á hvaða forsendum.

Með viðtöku Lissabon-sáttmálans munu stjórnarskrár aðildarlandanna verða undirorpnar sáttmálanum þegar að Evrópuráðið setur fram löggjöf fyrir aðildarlöndin. Þetta þýðir að löggjöf þarf fyrst og fremst að samræmast markmiðum í Lissabon sáttmálanum og getur verið á skjön við gildandi stjórnskrá landanna (en það er þá vandamál þeirra sjálfra).

Annað sem ætti að vekja fólk til umhugsunar um lýðræðisþróun á vegum Evrópusambandsins er að þrátt fyrir að til sé stofnun innan sambandsins, evrópusambands-Þingið, er það Evrópuráðsins eins að setja fram löggjöf eftir gildistöku Lissabon sáttmálans.

Þó að Evrópuráðið sé undir ráðherranefndinni þá stjórna og stella innandyra í ráðinu mis spilltir embættismenn.  Evrópuráðið er því mjög valdamikið og völdin eru í höndum fólks sem ekki er lýðræðislega kosið, hvað þá að það þurfi að standa reikningsskil gagnvart almenningi.

Forseti ráðsins yrði ekki kosin. Hann yrði skipaður, í gegnum valdaspil og refskákir sem færu fram bakvið loftþétt luktar dyr. Í þessu ljósi er lýðræðisþróun í Bandaríkjunum komin langt framar en í Evrópu.  Manni dettur í hug alræði!

Á meðan að allir sjónvarpskjáir heimsins endurvarpa forprófkjörum bandarískra forframbjóðenda til forsetaembættisins er lýðræðið í verðandi stórveldi Evrópusambandsins ekki meira en svo.

Þetta getur haft írónískar og pínlegar afleiðingar fyrir samskipti fulltrúa Evrópusambandsins við önnur lönd á alþjóðavettvangi. T.d er forseti sambandsins fer í opinbera heimsókn til Kína og ber fram opinberar yfirlýsingar um áhyggjur af mannréttindamálum. Kínverjar sjá í gegnum þessa holu vísifingurssveiflu.

Þeir spyrja á móti hvað forsetinn fékk mörg atkvæði þegar hann var kosinn og komst til valda yfir 25 löndum!!!! Honum verður svara vant, því hann fékk enginn. 

Það er margt sem þyrfti að breytast í ákvarðanatökuferlum sambandsins til að ég gæti fellt mig við aðild Íslands að sambandinu.


Evrópa svædanna (sveitarfélaganna)

Ein adal umrædan um thróun yfirthjódlegrar svædisbundinnar samvinnu og stjórnsýslu fyrir 10-15 árum sídan var hvort ad hnattvædingin eda svædavædingin yrdi ofan á í thróun Evrópusambandsins. Ég var einmitt ad rifja upp ad fyrir 15 árum skrifudum vid nokkrar skólasystur um 300 bls. ritgerd um Brussel-vædingu danskra sveitarfélaga. Thá voru fyrstu dönsku sveitarfélögin (Århus, Sønderborg ofl.) ad opna skrifstofur til ad hafa áhrif og lobbýa thróun og medhöndlun mála í Evrópurádinu í Strassbourg. Hvatinn var fyrst og fremst ad lada ad fyrirtæki, beita sér í atvinnumálapólitík og vekja athygli á gódum innvidum sveitarfélaganna fyrir fyrirtæki og stofnanir. Á sama tíma voru ad verda til svædisbundin vidskipta- og atvinnuthróunarfélög sem vildu beita sér á annan hátt en ádur hafdi verid. Ólíkar styrkjaveitingar til svædanna, sérstaklega til atvinnuthróunar voru einnig mikill hvati ad útibúastofnun sveitarfélaganna erlendis.

Ein spurning stód eftir og gerir væntanlega líka í íslensku samhengi í dag.

Er althjódavæding sveitarfélaga í atvinnu- og vidskiptamálum teikn um ad völd og rádrými thjódlegra stjórnvalda sé á undanhaldi?


mbl.is Sveitarfélagasamtök ESB funda í Reykjavík
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Avanti Popolo!

Kæru öll, til hamingju med daginn!

Thad er sjaldan sem ad 1.maí og kristi himmelfart/uppstigningardagur ná saman. Dagurinn í dag ætti thví ad vera helgadur samstödu theirra trúudu og materíalistanna.

Ég var annars um daginn ad rifja upp "internationalinn" med Lars fyrrverandi manninum mínum og konunni hans Hönnu og vid hlógum thessi ósköp yfir hvad vid værum ordnir lélegir kommúnistar ad muna ekki einu sinni almennilega textann lengur. Thad er af sem ádur var.

Sendi hér ad gamni hinn ítalska söng sem enginn annar en Hjörtur Torfason kenndi mér í sína tíd.

Avanti o popolo, alla riscossa
Bandiera rossa, bandiera rossa
Avanti o popolo, alla riscossa
Bandiera rossa trionferà.

Bandiera rossa la trionferà
Bandiera rossa la trionferà
Bandiera rossa la trionferà
Evviva il socialismo e la libertà!

Degli sfruttati l'immensa schiera
La pura innalzi, rossa bandiera
O proletari, alla riscossa
Bandiera rossa trionferà.


Hvernig væri ad taka jákvædan pól í hædina?

Thetta er hreinræktadur vandalismi, enginn spurning um thad.

En er ekki hægt ad vera med mótvægisadgerdir, t.d koma upp samkeppni i listsköpun á húsveggjum á einskismannslöndum borgarinnar sem er svo óskaplega mikid af, bakhlidar bílskúra og annad ljótt grátt steypuvirki sem freistar sem krotflötur.

Bara hugmynd - hvernig væri ad snúa neikvædni upp í jákvædni og bjóda skemmdarvörgum birginn med hlátri og skemmtun.  Thannig er hægt ad hía á leidindadurga.


mbl.is Röktu slóð krotaranna frá miðborg upp í Hlíðar
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Fyrri síða | Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband