Færsluflokkur: Íþróttir

Maður sem veit sínu viti

Ég fagna því að Logi Geirsson sé áræðinn og skapandi karakter, því það er hann greinilega. Hann er því engan veginn búinn að missa neitt. Hann er einfaldlega skarpskyggn á hvar mannlífið þrífst og hefur áttað sig á möguleikunum á þessum nýja pr.vettvangi höfuðborgarbúa. Það er verra að ná til fólks sem situr lokað inn í einkabílhylkjunum sínum eða snarar sér inn í firrtar verslunarmiðstöðvar.

Flott hjá honum!


mbl.is Logi Geirs búinn að missa það - selur bókina í strætó
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Frábært framtak

Mikið varð ég glöð að lesa þessa frétt. Samstaðan á Hvanneyri getur verið engu lík og eitt er víst að hann Sverrir Heiðar er einn af meiri heiðursmönnum sem ég hef kynnst þar.  Ég hvet alla sem að vettlingi geta valdið að styðja þetta góða átak og vona og bið að Sverrir muni vinna á meininu og öðlast fullan bata.

það er mikilvægt að standa saman og sýna kærleik í verki. Það ætla ég allavega að gera.


mbl.is Stuðningsmaraþon í Borgarfirði
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband