14.5.2008 | 07:31
Sjaldan er ein báran stök
Ég fór inn á heimasíður WMO (alþjóða veðurfræðisamtakanna) til að athuga hvar fellibyljaaðvaranirnar eru. Það kom í ljós að fleiri storm- og fellibyljaaðvaranir eru á svæðinu.
Veðurfræðisamtökin eru á vegum sameinuðu þjóðanna og halda úti upplýsingum á netinu um veðuraðvaranir af ýmsu tagi, og meðal annars sérstaklega um hitabeltis-fellibylji.
Þar eru rauntímaupplýsingar (frá flestum svæðum heims).
Síðan heitir Severe weather
Ég vona svo sannarlega að íbúar Myanmar (fyrrum Búrma) þurfi ekki að upplifa enn einar hamfarirnar nóg er nú um, en því miður er sjaldan ein báran stök í þeim efnum.
![]() |
Annar fellibylur ógnar Búrma |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
13.5.2008 | 22:09
Næring óánægðu konunnar
Ég lyfti mér upp og fór í bíó að sjá sænsku myndina Himlens hjerte. Hún er frábær...segi ekki meir.
Ætla að hjúfra mig undir sæng og lesa bók sem Sören gaf mér úr dánarbúi móður sinnar, og heitir Bryd! um kvenleika og feminisma eftir Mette Bryld og Nina Lykke. Hún er algjört bíó þessi bók, andar hugmyndum frá áttunda áratug síðustu aldar. Ég veit ég á eftir að skemmta mér konunglega yfir kafla sem fjallar um líkamstjáningu og kynin. Þar er tugur mynda þar sem menn gera sig breiða og nýta talsvert pláss á meðan að konurnar eru eins og þvörur og reyna að gera sig mjórri á ýmsa vegu, t.d með því að sitja og standa með fæturnar læstar saman....og ef mér leiðist get ég jú alltaf flett upp í tímaritinu alt for damerne sem er næring óánægðu konunnar!
12.5.2008 | 08:45
Gott hjá Gísla!
Gaman að sjá Gísla, gamlan félaga úr stjórn námsmannafélagsins í Kaupmannahöfn (nú Stúdentafélagið) leggur sitt af mörkum í viðbragðsáætlunum vegna þessara hræðilegu náttúruhamfara í Myanmar.
Danskar sjónvarpsstöðvar greindu frá því í gærkvöldi að orkukexið sem sent var úr norðurhöfninni fyrir fjórum dögum síðan (á vegum unicef) en hafði verið gert upptækt af fulltrúum herforingastjórnarinnar við komuna til Rangoon, er nú loks frelsað úr geymslum lagersins á flugstöðinni.
Fyrsti rauða kross báturinn sigldi af stað með það en sökk á leiðinni vegna erfiðleika með að komast um flóðasvæðið. Allar þær hundruð þúsunda vatnshreinsandi taflna sem sendar voru héðan af kastrup velli í vikunni hafa enn ekki náð til fólksins (eftir því sem næst verður komist).
Það er vonandi að Gísla takist að lesa rétt úr stöðunni, manni skylst að mikið beri í milli opinberrra miðla og t.d búrmanskra flóttamanna sem vinna við fjölmiðla á vesturlöndum í frásögnum frá afleiðingum stormsins. Og þá er vert að nefna ef það hefur ekki komið fram heima að norræna ráðherranefndin og þarmeð íslensk stjórnvöld eiga þátt í að halda úti alternativri útvarps- og sjónvarpsstöð í gegnum gervihnött og hún miðlar dálítið öðrum fréttum en fulltrúar herforingjastjórnarinnar. Fréttastofan er staðsett í Osló og þar vinna um 15-20 X-búrmesar.
![]() |
Íslendingur stýrir stuðningi Microsoft við Búrma |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
9.5.2008 | 08:26
Lýðræðisþróun Evrópusambandsins
Nú er búið að lappa upp á stjórnaskrá Evrópusambandsins sem nú heitir Lissabon samningurinn og mun yfir sumar Evrópusambandsþjóðirnar ganga án þjóðaratkvæðagreiðslu. Frakkar fóru jú flatt á því að treysta eigin þjóð til að kjósa um málið (eins og sú þjóð hefur nú alltaf aðhyllst stóru skrefin í framþróun Evrópusamstarfsins).
Það er margt í lýðræðisþróun Evrópusambandsins sem ætti að vekja fólk til umhugsunar um hvaða stórveldi menn vilja ganga inn í og á hvaða forsendum.
Með viðtöku Lissabon-sáttmálans munu stjórnarskrár aðildarlandanna verða undirorpnar sáttmálanum þegar að Evrópuráðið setur fram löggjöf fyrir aðildarlöndin. Þetta þýðir að löggjöf þarf fyrst og fremst að samræmast markmiðum í Lissabon sáttmálanum og getur verið á skjön við gildandi stjórnskrá landanna (en það er þá vandamál þeirra sjálfra).
Annað sem ætti að vekja fólk til umhugsunar um lýðræðisþróun á vegum Evrópusambandsins er að þrátt fyrir að til sé stofnun innan sambandsins, evrópusambands-Þingið, er það Evrópuráðsins eins að setja fram löggjöf eftir gildistöku Lissabon sáttmálans.
Þó að Evrópuráðið sé undir ráðherranefndinni þá stjórna og stella innandyra í ráðinu mis spilltir embættismenn. Evrópuráðið er því mjög valdamikið og völdin eru í höndum fólks sem ekki er lýðræðislega kosið, hvað þá að það þurfi að standa reikningsskil gagnvart almenningi.
Forseti ráðsins yrði ekki kosin. Hann yrði skipaður, í gegnum valdaspil og refskákir sem færu fram bakvið loftþétt luktar dyr. Í þessu ljósi er lýðræðisþróun í Bandaríkjunum komin langt framar en í Evrópu. Manni dettur í hug alræði!
Á meðan að allir sjónvarpskjáir heimsins endurvarpa forprófkjörum bandarískra forframbjóðenda til forsetaembættisins er lýðræðið í verðandi stórveldi Evrópusambandsins ekki meira en svo.
Þetta getur haft írónískar og pínlegar afleiðingar fyrir samskipti fulltrúa Evrópusambandsins við önnur lönd á alþjóðavettvangi. T.d er forseti sambandsins fer í opinbera heimsókn til Kína og ber fram opinberar yfirlýsingar um áhyggjur af mannréttindamálum. Kínverjar sjá í gegnum þessa holu vísifingurssveiflu.
Þeir spyrja á móti hvað forsetinn fékk mörg atkvæði þegar hann var kosinn og komst til valda yfir 25 löndum!!!! Honum verður svara vant, því hann fékk enginn.
Það er margt sem þyrfti að breytast í ákvarðanatökuferlum sambandsins til að ég gæti fellt mig við aðild Íslands að sambandinu.
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 12:07 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
8.5.2008 | 22:08
Grænt gras
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
7.5.2008 | 08:29
Munur á -jónum og -jörðum!

![]() |
Hagnaður Glitnis 5,9 milljarðar |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
6.5.2008 | 12:13
15 milljónir gistinátta á íslenskum tjaldsvædum!
Ég er ad taka saman tölfrædi í heimskautaverkefni thar sem vid erum m.a ad bera saman ferdamálin thvert á heimskautalöndin. Thar komst ég ad thví ad íslensk tjaldsvædi hafa notid mikilla vinsælda sérstaklega thau á Nord-Austurlandi og Sudurlandi á árabilinu 1997-2007 en thar var á hvoru svædinu um sig um 4 milljónir gistinátta. Alls voru 15 milljónir gistinátta á íslenskum tjaldsvædum á thessu tímabili. Í samanburdi vid thrjú nyrstu fylki Noregs en í nordanverdum Noregi er einn mest heimsótti ferdamannasegull Nordurheimskautslandanna Nord Cap, var tæplega 2,8 milljónum gistinátta eytt á árabilinu 2005-2008 (Nordland, Troms og Finnmark).
Thetta fellur víst undir irrelevante länderkundern, en skemmtilegt samt!
Ferðalög | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
6.5.2008 | 08:39
Evrópa svædanna (sveitarfélaganna)
Ein adal umrædan um thróun yfirthjódlegrar svædisbundinnar samvinnu og stjórnsýslu fyrir 10-15 árum sídan var hvort ad hnattvædingin eda svædavædingin yrdi ofan á í thróun Evrópusambandsins. Ég var einmitt ad rifja upp ad fyrir 15 árum skrifudum vid nokkrar skólasystur um 300 bls. ritgerd um Brussel-vædingu danskra sveitarfélaga. Thá voru fyrstu dönsku sveitarfélögin (Århus, Sønderborg ofl.) ad opna skrifstofur til ad hafa áhrif og lobbýa thróun og medhöndlun mála í Evrópurádinu í Strassbourg. Hvatinn var fyrst og fremst ad lada ad fyrirtæki, beita sér í atvinnumálapólitík og vekja athygli á gódum innvidum sveitarfélaganna fyrir fyrirtæki og stofnanir. Á sama tíma voru ad verda til svædisbundin vidskipta- og atvinnuthróunarfélög sem vildu beita sér á annan hátt en ádur hafdi verid. Ólíkar styrkjaveitingar til svædanna, sérstaklega til atvinnuthróunar voru einnig mikill hvati ad útibúastofnun sveitarfélaganna erlendis.
Ein spurning stód eftir og gerir væntanlega líka í íslensku samhengi í dag.
Er althjódavæding sveitarfélaga í atvinnu- og vidskiptamálum teikn um ad völd og rádrými thjódlegra stjórnvalda sé á undanhaldi?
![]() |
Sveitarfélagasamtök ESB funda í Reykjavík |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
5.5.2008 | 21:56
Valdasjúkur kúgari
Manni hefur bara orðið orða vant við röð frétta af meintum og langvinnum glæp ódáðamannsins Josef F síðustu viku. Hann er svo mikill tyran að leita þarf lengi að einhverri hliðstæðu.
Ég er annars búin að vera að horfa á þættina "kongemordet" byggða á skáldsögu Hanne Vibeke Holst um ofbeldisfullan forsætisráðherra kandidat í danska sjónvarpinu. Eins og höfundurinn hefur útskýrt er ein helsta aðferð manna (í einkalífi, í opinberu lífi, milli þjóða osfrv.) að leita á náðir hins frumstæða valds sem liggur í ofbeldi ef ekki vill betur. Oftast verða konur (og börn) fyrir barðinu á slíkum kúgunaraðferðum. Það er þó sjaldan að faðir veldur afkvæmi sínu svo langvinnan og ógeðfelldum glæp og um getur. Mamman, í þessu tilfelli móður dótturinnar og kona Josef hlýtur hreinlega að hafa verið svo kúguð að hún hefur ekki haft sjálfstæðan vilja. Eða hann hefur kannski verið barin úr henni fyrir löngu. Mér finnst samt skrýtið, með það innsæi sem konur hafa oft, að hún hafi ekki hugsað sitt.
Það er með ólíkindum að nágranna eftirlitið hafi ekki verið meira í smábænum austuríska og óskandi að það hefði verið meira.
Megi hann vera fundinn í fjöru!
![]() |
Fritzl vill ekki fara úr fangaklefanum |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (6)
1.5.2008 | 09:28
Avanti Popolo!
Kæru öll, til hamingju med daginn!
Thad er sjaldan sem ad 1.maí og kristi himmelfart/uppstigningardagur ná saman. Dagurinn í dag ætti thví ad vera helgadur samstödu theirra trúudu og materíalistanna.
Ég var annars um daginn ad rifja upp "internationalinn" med Lars fyrrverandi manninum mínum og konunni hans Hönnu og vid hlógum thessi ósköp yfir hvad vid værum ordnir lélegir kommúnistar ad muna ekki einu sinni almennilega textann lengur. Thad er af sem ádur var.
Sendi hér ad gamni hinn ítalska söng sem enginn annar en Hjörtur Torfason kenndi mér í sína tíd.
Avanti o popolo, alla riscossa
Bandiera rossa, bandiera rossa
Avanti o popolo, alla riscossa
Bandiera rossa trionferà.
Bandiera rossa la trionferà
Bandiera rossa la trionferà
Bandiera rossa la trionferà
Evviva il socialismo e la libertà!
Degli sfruttati l'immensa schiera
La pura innalzi, rossa bandiera
O proletari, alla riscossa
Bandiera rossa trionferà.