Færsluflokkur: Stjórnmál og samfélag

Könnun á stöðu og framtíð landbúnaðar og þróunar byggðar til sveita

Við verkefnahópurinn í litrófi landbúnaðarins héldum fund með bændum í Hvalfirði í byrjun vikunnar. Það var gagnlegur fundur og við fengum heilmiklar athugasemdir við spurningalistanum sem að hjálpuðu okkur við þróun hans. Arnheiður frá Bjarteyjarsandi hjálpaði okkur við þetta, hún er algjört gull.

Mynd_0400525

Skýrslan um viðtöl við bændur árið 2007 kom út í vikunni. Í byrjun næstu viku sendum við síðan spurningakönnun á úrtak 850 býla á Íslandi og vonum auðvitað að við fáum góða svörun við listunum, þó að á hábjargræðistímanum sé.

Við höfum trú á íslenskum bændum!

Við erum spennt að fá viðbrögð. 


Það þarf að innleiða búsetuskyldu í reglugerð!

Það er greinilegt að eigandi hússins við Njarðargötu er enginn miskunnsamur samverji. Þegar liðin eru 17 ár eins og í þessu tilfelli og önnur 12 frá því að lögregluyfirvöld kvarta yfir stöðu mála spyr maður sig hvurs lags uppburðarleysi stjórnvöld á hvaða stjórnsýslustigum sem er, lifa og sætta sig við.

Ég hef nú ekki verið talsmaður búsetuskyldu til að koma í veg fyrir brask og eignahaldssamþjöppun á húsnæði en mér finnst að miðbærinn og einstaka hús eins og þetta er dæmi um líði verulega fyrir spekulasjónir gráðugra verktaka eða annara sem ekki hafa hagsmuni samfélagsins í hávegum.

Víða erlendis, ekki síst á norðurlöndunum er búsetuskylda innleidd til að koma í veg fyrir að svona geti gerst. Mér finnst að það eigi að eiga við hjarta Reykjavíkur, gamla kjarnann svo við höfum af einhverju að vera stolt af til framtíðar.

 


mbl.is Draugahúsið við Njarðargötu
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Aðkallandi að merkja umferðamiðstöðina og gera hana sýnilegri !

Ég hjóla gjarnan framhjá flugvellinum á leið í og úr vinnu og hef undanfarnar vikur tekið að mér aukastarf, reyndar alveg af tilviljun, sem leiðsögumaður villuráfandi ferðamanna sem að finna ekki BSÍ.

Samgönguskipulag og upplýsingar um leiðir og stefnur miðast nær eingöngu við akandi bensínfarartæki hér í bæ og lítið gangandi fólk, en í mörgum tilfellum og jafnvel flestum tilfellum eru erlendir ferðalangar hér á landi fótgangangandi eða með rútum (ef þeir finna þær) þó einhverjir leigi sér bíl.

Ég hef hitt Asíufólk, Ítali, Skota, Hollendinga og allra þjóða kvikindi sem að finna ekki "umferðarmiðstöðina" Það þyrfti að vera málað á allar hliðar þessarar byggingar að hún væri Central coach station. Fólkið er alltaf jafn þakklátt fyrir liðsinni mína en alltaf jafnt frustrerað yfir vega- og samgöngumiðstöðvaskipulagi borgarinnar. Var ekki einhver sem sagði einhvern tímann að glöggt væri gests augað?

Mikil bót varð er flugrúturnar og þeirra stoppistöð varð BSÍ þannig að hægt væri að tengja áætlunarrútuferðir aðrar við þær, síðan tók við hörmungatímabil þar sem að útboð (og einhver fáranleg hugmyndafræði um að stokka þyrfti upp allar einingar í rútusamgöngum) urðu til þess að kynnisferðir frömdu valdarán á BSÍ og önnur rútufélög voru gerð útlæg af stöðinni. Ekki var það bót fyrir viðskiptavinina, svo mikið var víst.

Talsverðar umbætur voru síðan gerðar fyrir um ári aftur (ef ég man rétt) og þá ætti allt að vera komið í betri farveg. Nema - BSÍ er ósýnileg gangandi ferðamönnum!

Þessi afdankaða bygging er eitthvað  voðalega skrýtin í borgarlandslaginu eftir að N1 byggði flennistóra eldsneytisáfyllingastöð þarna og til varð Reykvísk hraðbraut.

Gott væri einnig fyrir ferðasöluaðila íslenska að huga að því að erlendir ferðamenn, eins og íslenskir vilja í meira mæli en áður ferðast sjálfstætt - sem auðvitað ætti að knýja hagsmunaaðila jafnt í samgöngum sem öðrum innviðum ferðaþjónustunnar að aðlaga sig breyttum aðstæðum.


mbl.is Samgönguráðherra fer yfir tillögur Ríkisendurskoðunar
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Hvað er mjólkurlamb?

Valdir matgæðingar fengu að smakka á mjólkurlambi í veisluturninum í Kópavogi í fyrrakvöld og lýstu þeir mikilli ánægju með kjötið, segir í frétt mbl.is Ef ég les rétt milli línanna er hið svokallaða mjólkurlamb sauður sem alinn er á mjólk - þetta er því varla hið góða frjálsa lamb sem fær að hoppa frjálst um í íslenskri víðáttu yfir sumartímann áður en því er slátrað. Spurning er hvort þau fá nokkuð að fara út í haga eða víðlendi áður en þeim er slátrað. 

Ég hélt satt best að segja að mjólkurfé væri sauðfé sem væri mjólkað og úr afurðunum búnir til ostar, og annað ljúfmeti. 

Mjólkurkálfar þykja lostæti víða, en hér á landi hefur ekki verið hefð að slátra mjólkurkálfum vegna bragðgæða (allavega ekki svo ég viti til).

 Þeir sérvöldu matgæðingar sem fengu að smakka gripinn hafa kannski fyrst og fremst einblínt á bragðgæði og strúktur kjötsins, en ætli þeir hafi spurt eitthvað til hvernig framleiðsluhættir að baki mjólkurlambseldinu væri háttað?


mbl.is Mjólkurlamb kynnt matgæðingum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Ætla að hjóla á náttúra tónleikana

Ég er svo heppin að ég  skipti úr vetrardekkjum yfir á sumardekk á vetrarhjólinu mínu svo að ég er vel búin til samgangna. Skrýtið orð - samgöngur. Að ganga saman. Karlarnir á upphækkuðu jeppunum hafa greinilega misskilið þetta orð eitthvaðWink

Fer í laugardalinn og hjálpa Gunnu og Einari Bergmundi á natturan.is, þar sem við ætlum að gefa góð og uppbyggileg ráð um vistvæna lífshætti, sultugerð og annað. Úff voðalega hljómar þetta eitthvað hippalegt. Ætli ég sé ekki bara eilífðarhippi eftir allt.Tounge

Hlakka til að heyra góða músík. Allir í laugardalinn!


Siðferðislögreglan góðan daginn!

Ég fór að pæla í hvort að færslan mín um ísbirnina myndi kalla á að blogg-siðferðislögreglan myndi banka upp á hjá mérWink eftir nokkur ár. Þetta er eins og með skólabræður mína í Danmörku sem að fengu pening fyrir að gefa sæði einu sinni í mánuði hjá einhverjum sæðisbanka en þurftu allt í einu að hugsa sig um þegar að ný löggjöf leit dagsins ljós um rétt barna til að vita uppruna sinnCrying

Haha, annars held ég að ég sé frekar dagfarsprúð og býð blogglöggunni bara í kaffi ef henni dettur í hug að banka upp á, á næstu árum.Smile


mbl.is Vilja setja hömlur á bloggara
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Áhrif bíómynda á ferðalög fólks

 DSC00815

Bíómyndin brúðguminn var skemmtileg og reglulega góð mynd. Flatey er reglulegur töfrastaður með eða án bíómyndar.

Ég dvaldi í nokkra daga með fjölþjóðlegum hópi doktorsnema og kennara þar sumarið 2003 í sumarskóla sem ég hélt utan um. Þá var Vogur opinn og við bjuggum bæði þar í húsinu og uppi í Krákuvör. Eyjan er griðastaður þar sem ekki er hægt að ná í mann með góðu móti og þar er hægt að sitja einn með hugsunum sínum og horfa á lunda í túnfæti.

 lundar a� gl�pa � mig

Það er umhugsunarvert hvernig að eyjurnar í Breiðafirði urðu meira og meira afskekktar þegar að samgöngur hættu að miklu leyti að fara sjóleiðina. Í dag hefur vegna þrjósku og myndarskap einnar bændafjölskyldu og afkomenda annara íbúa í Flatey varðveist perla sem að hægt er að flykkjast til. Hið afskekkta hefur snúist upp í aðdráttarafl.

DSC00839

Vonandi eru fleiri aðstandendur í ferðaþjónustu á landsbyggðinni sem átta sig á þessu...en engin spurning, bíómynd hjálpar.

Ég vona bara að bíómyndin geri ástandið ekki óbærilegt á háannatímanum. Flatey hefur mjög ákveðin félagsleg þolmörk - þau eru svona nokkurn veginn þau að það má ekki vera svo margt um manninn þar í einu að manni finnist að maður hefði allt eins getað verið heima hjá sér. Arctic games competition

Perlur eins og Flatey verða einstakar fyrir nokkurra hluta sakir. Flatey skartar bæjarmynd sem hefur verið varðveitt og viðhaldið og eiga sér enga líka á landinu, eru minnisvarði um arfleifð samfélagshátta sem að forfeður okkar sættu sig við, en fáir gera í dag.  Eins er þar náttúru- og fuglalíf sem þéttbýlis-manneskjan vill leita í sér til hugarhægðar og afþreyingar, ásamt því að finna frelsið í að vera stökk, fjarrri glaum og gys og asa borgarinnar. Farsímatengingar eru fjarri og ef eitthvað vantar, þá vantar það bara.

Back to basics, var þetta einu sinni kallað. Það er í tísku í dag. 

 

Hér má sjá liðið í leikjum. Við kölluðum það Arctic games competition og vorum nokkuð aðhlátursefni farþega af skemmtiferðaskipum sem komu í land með gúmmíbátum. 


mbl.is Metdagur í siglingum um Breiðafjörð
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Vodafone og sveitarfélögin á landsbyggðinni lækka eldsneytisverð niður í O kr.

Ég sá heilsíðu auglýsingu í dag í blaðinu frá Vodafone um að þeir láni fólki reiðhjól því að kostnaðarlausu við sundlaugarnar á Akranesi, Akureyri, Bolungarvík, Borgarnesi, Dalvík, Egilsstaði, Húsavík, Ísafjörður, Reykjanesbær, Sauðárkrókur, Selfoss og Vestmannaeyjar. Um 400 reiðhjólum hefur verið dreift á þessum stöðum. Notendur sækja lykla á lásana inn í sundlaugarnar og skila þeim aftur eftir notkun. Þetta átaksverkefni er mikilvægt og á eflaust eftir að vekja lukku ekki síst meðal ferðamanna á stöðunum og svo vakandi Íslendinga sem eru að átta sig á gildi hjólsins og hjólreiða.

talsmadur-hjolin

Þá er bara að vona að hin alræmda íslenska skemmdarfýsn fái ekki náð taki sínu á þessu þarfa og góða átaki. Trúum því, trúum að á Íslandi sé batnandi fólki best að lifa. Smile


Máttur kvenna á ýmsum sviðum

Í gær var 19.júní sannkallaður hátíðisdagur, eða eins og Gísli sagði á facebook síðunni sinni vísir að lýðræði í 93 ár.

Við sem höfðum staðið í undirbúningshópi jafnréttisseturs ásamt öðrum góðum konum vorum mættar snemma upp í utanríkisráðuneyti til að sjá og fagna undirskrift rektors Kristínar Ingólfsdóttur og utanríkisráðherra Ingibjargar Sólrúnar Gísladóttur á viljayfirlýsingu um stofn setursins og alþjóðlegs jafnréttisskóla. Það var ljúft og í anda dagsins. Og ég var að springa úr stolti yfir samstarfskonum mínum og vinkonum Irmu,Sigríði og Sjöfn.

Á eftir hittum við samstarfskona mín Katrín Anna Lund, Hrönn Marínósdóttur vegna kvikmyndahátíðarinnar Reykjavík International Film Festival þar sem við vorum með bollaleggingar um aðkomu ferðamálafræðinema að hátíðinni og samhæfingu milli vettvangs og fræðivinnu.

Síðar um daginn hélt Rannsóknarstofnun í kvenna- og kynjafræðum við Háskóla Íslands smá hóf þar sem við spjölluðum og skemmtum okkur yfir bæði ísbjarnarfréttum og fótbolta, glerþökum og öðru léttmeti. Wink

Var síðan í sambandi við kempuna hana Gunnu sem er með stór áform eins og venjulega. Við erum og munum vinna í því saman nú og á næstunni. 

 Í kvöld fylgdumst við mæðginin svo með söfnunarátakinu á allra vörum, hringdum inn, að sjálfsögðu og lögðum okkar skerf í púkkið - sendum nafnatillögu inn um græjuna (okkur fannst nafnið birta gott! en Björg er mjög gott líka).

Allt þetta sýnir nú hvað við eigum æðislegar konur hérna á Íslandi (hver annari meiri talent, hver annari flottari). Ég er stolt af því að vera íslensk kona.


Fann íslenska fánann í ruslinu!

Í gær var margt um manninn í bænum í yndislegu veðri, neysluglaðir íslendingar brugðust ekki frekar en fyrri daginn, raðir voru margra metra langar fyrir framan hverja einustu sölubúð sem sett hafði verið upp. Margt var hægt að kaupa, meðal annars íslenska fánann og sáust mörg börn veifa þjóðarstoltinu ánægð með sig og sína. Eitthvað voru aðrir ekki alveg nógu ánægðir með fánann eða þá að skemmdarfýsnin varð öðru ofursterkari. Við sonur minn fundum einn í ruslinu á lækjartorgi og hirtum hann. Gengum upp á Arnarhól og heim í afahús þar sem gert var við fánann í snatri, enda sá gamli af þeirri kynslóð þar sem maður lagar hlutina og hendir þeim ekki bara. Það var ánægður drengur sem gekk veifandi með íslenskan fána niður Arnarhól stuttu síðar.

Ránið á fánunum er leiðinlegt afspurnar og örugglega ekki framið af einhverjum sem bráðvantaði þjóðartáknið þrílita. 


mbl.is Fánum stolið af leiði Jóns Sigurðssonar
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Fyrri síða | Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband