Ætla að hjóla á náttúra tónleikana

Ég er svo heppin að ég  skipti úr vetrardekkjum yfir á sumardekk á vetrarhjólinu mínu svo að ég er vel búin til samgangna. Skrýtið orð - samgöngur. Að ganga saman. Karlarnir á upphækkuðu jeppunum hafa greinilega misskilið þetta orð eitthvaðWink

Fer í laugardalinn og hjálpa Gunnu og Einari Bergmundi á natturan.is, þar sem við ætlum að gefa góð og uppbyggileg ráð um vistvæna lífshætti, sultugerð og annað. Úff voðalega hljómar þetta eitthvað hippalegt. Ætli ég sé ekki bara eilífðarhippi eftir allt.Tounge

Hlakka til að heyra góða músík. Allir í laugardalinn!


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Steinunn Helga Sigurðardóttir

það er nú bara ágætt að vera hippi, sérstaklega ef manni er unnt um náttúruna, hana Móður okkar Jörð ! og góð sulta, ekki slæmt.

hafðu fallega helgi.

steina 

Steinunn Helga Sigurðardóttir, 28.6.2008 kl. 15:20

2 Smámynd: Anna Karlsdóttir

Takk fyrir það.

Hvað stendur tréstokkur fyrir?

Anna Karlsdóttir, 29.6.2008 kl. 15:08

3 Smámynd: Anna Karlsdóttir

Ok

flott orð tréstokkur! 

Anna Karlsdóttir, 29.6.2008 kl. 18:32

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband