20.3.2008 | 00:43
Gestgjafar minir i Vitoria
Svo eg kynni gestgjafa mina til sogunnar tha eru their saetir bangsakaerastar sem ad eru nyfluttir saman. Eduardo er landslagsarkitekt her i borg og vinnur vid ad endurskipuleggja strandlengjuna. Erly er kvikmyndagerdarmadur og lektor i kvikmyndafraedum her vid haskolann. Their eru a netinu faketown og pelusho.
Eduardo er litli brodir Leonardo vinar mins og kollega her. Hann er buin ad virkja alla storfjolskylduna ad taka a moti mer. Thetta kallar madur vist gestrisni med storu G.
Og her kemur astaedan fyrir thvi ad eg heiti volcanogirl her a blogginu. Heidurinn ad nafninu a storbandid Veruca Salt sem er i miklu uppahaldi hja mer.
Ferðalög | Breytt s.d. kl. 00:50 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
20.3.2008 | 00:08
Godar frettir fra Vitoria i Espirito de Santo Fylki
Tha er eg buin ad eyda yndislegum dogum her hja gestgjofum minum Eduardo og Erly sem hafa hreinlega borid mig a hondum ser. Vid forum i klaustrid a toppi Vilha Velha i eftirmiddaginn i dag, og i gaer var eg a frabaerum paskatonleikum filharmoniusveitar borgarinnar i domkirkjunni med nokkrum kunningjum hedan.
Brasiliubuar eru vinalegir og sjaldan hef eg sed eins mikla floru af fallegu folki, blendingjum margra olikra kynthatta og thjoda. Staersta japanska samfelag heims utan Japans er til ad mynda i Sao Paulo.
Leonardo er fertugur i dag, hringdi i hann thar sem hann var uti ad borda med bornum og fjolskyldu. Eg spurdi hann hvernig honum lidi og hann sagdi: Eg er hraeddur. Skrytid! Eda hvad...mid-life crisis!? Eg huggadi hann og sagdi ad thessi tilfinning hlyti ad lida hja.
Her er margt skrytid. Andarnir shasha sem bua i bambusvidnum, loftkaelingarkassar utan a husunum sem likjast fuglaburum, saltfiskur i oll mal af thvi ad nu er paskafastan i gangi, eg tala til skiptis hrafl-spaenskuna mina og ensku og reyni af ollum maetti ad skilja portugolskuna. Eduardo er ad sannfaera mig um ad ef eg bui her i thrja manudi verdi eg alveg rosa god. Thad var half fyndid atridi ad kona ein fadmadi mig i Domkirkjunni og helt mig vera fraenku sina. Thad sannfaerdi hann um ad eg vaeri naestum ordin brasilisk, sjaum til med thad.
Her hjolar madur fram hja a hverjum degi med risa hatalara sem spyr ut kristilegum arodri af bogglaberanum. Her ma vart a milli sja hvor hefur betur i samkeppninni um vinsaeldir, Walmart megamarkadurinn eda Stora kirkjan krists og fodur hans sem er med risahof vid hlidinna og heldur uti sapuoperusjonvarpsstod til ad tryggja vinsaeldir sinar.
Mer likar thad brot vel sem eg hef sed, verndud sem eg er, en atta mig betur og betur a, ad Brasilia er eins og BNA, margskipt, margbrotin og stor verold. Her bua um 190 milljonir af ollum kynthattum, og hvert fylki er a vid eitt evropskt storriki eda svo. Espirito de Santo fylki sem eg er i nuna er t.d a vid Portugal, Sao Paulo fylki vaentanlega a vid baedi Thyskaland og Span, og Minah Gerais sem eg fer til bradum er a vid Frakkland ad staerd.
Gledilega Paska til Islands.
Ferðalög | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
9.3.2008 | 14:03
Hvað með töskurnar?
Það er gott fyrir þá sem þurfa að hafa hraðann á að geta bókað sig rafrænt sjálfir, þetta sparar auk þess starfsfólk við innritun ef að farþegar bóka sig á þennan hátt (getur verið jákvætt - getur verið neikvætt). Ég hef aldrei nýtt mér þennan kost hjá öðrum flugfélögum en hyggst gera það héðan. Nenni ekki að eyða upp undir 20. mínútum í röð með stírurnar í augunum.
Ef ég get vaknað kortéri seinna er ég glöð.
En þá er spurningin þarf ekki að vera band fyrir farangurinn sem hlaðið er á og farangurinn "barkóðaður" - hvernig er gengið frá því?
![]() |
Flugfélög bjóða upp á netinnritun |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (4)
6.3.2008 | 21:40
Gleðifrétt fyrir New York skrifstofu ferðamálastofu.
Það er nýmæli að sveitarfélög taki þátt í fjármögnun kynningarátaks um ferðamál sem ríkið hefur haft hefð fyrir að standa straum af. Reykjavíkurborg ber höfuð og herðar yfir önnur sveitarfélög á landinu vegna stærðar sinnar. Á vegum Reykjavíkurborgar hefur auk þess verið haldið úti mjög öflugri ferðamálamarkaðssetningu. Þetta er því liður í að samræma og útvíkka markaðssetningu Reykjavíkur/ eða öllu heldur höfuðborgarsvæðisins.
Einar hefur úr meiru að moða og gaman verður að sjá hvernig aukin vigt á átakið skilar sér.
![]() |
Reykjavíkurborg þáttakandi í Iceland Naturally |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Ferðalög | Breytt s.d. kl. 21:44 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Þetta er athyglisvert. Eftir að menn hafa í þjóðrembu barið sér á brjóst að íslendingar eigi svo og svo mikið í útlöndum, hahaha, þá eru þetta skilaboðin til almennings í landinu.
Arðsemin af fjárfestingum og starfsemi erlendis byggðar á lántökum m.a úr íslenskum bönkum flæðir ekki inn í íslenskt samfélag alias íslenskt skattkerfi.
Mörgum finnst ekki ákjósanlegt að alþjóðasamsteypur taki hér yfir atvinnulíf og fyrirtækjarekstur. Það er byggt á þeim rökum að mun meiri hætta sé á hagrænum leka þar sem slíkar aðstæður eru fyrir hendi.
...en mér er spurn - hversu verra er það þegar að íslendingar sjálfir flýja með fjármagn sitt annað og staðhæfingarnar um að velmegun þeirra sé samfélaginu til góða almennt eiga ekki við rök að styðjast.
![]() |
Segir útrásina hafa lítil áhrif |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
4.3.2008 | 09:32
Brjóst á uppboði!
Fiðrildavika Unifem hefur vakið athygli í fjölmiðlum og á nú að fara að bjóða upp heimaprjónuð brjóst (hversu fáránlega sem það hljómar). Ég fór að velta fyrir mér notagildi þessara brjósta og tel þau ekki mikil á þessum síðari tímum nema ef vera skyldi fyrir konur með börn á brjósti sem ekki mega við gegnumtrekk. En það hlýtur að vera bölvað vesen að festa þessar dúllur á þannig að þær haldist.
Ég mæli frekar með hönnun Bíbíar vinkonu minnar í Barcelona á konubrjóstum, en þær eru notaðar sem brjóstsykurskálar. En svo eru líka brjóst búin til úr brjóstsykri og hægt að gæða sér á þeim.
En ég fagna vissulega þessu átaki Unifem sem ég tel löngu tímabært! Til hamingju með það stelpur.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (4)
2.3.2008 | 18:23
Í kjölfar mannfagnaðar.
Eftir allar annirnar tengdar IFEA þingi og auðvitað fyrst og fremst Journeys of Expression VII - Edges of the world..er spennufall.
Ohohoho - ég var búin að gleyma hvað er gaman að dansa. Ég segi þetta reyndar alltaf í hvert skipti eftir að ég tek sveiflu.
Það sem einkenndi ráðstefnuna okkar í háskólanum um helgina var yndislegt og skemmtilegt fólk. Þáttakendur voru frá um 16 þjóðum og allir töluðu um hvað það væri góð og glöð stemning. Þarna voru mörg fróðleg erindi sem bæði var hægt að læra af en líka nýta í tengslum við eigin verkefni.
Ég held að þegar upp er staðið skipti svona jákvæð stemning, yfirlætislaus samskipti og gagnkvæm virðing mestu máli um hvort maður a) nenni að byggja upp langtíma samstarfstengsl hvort heldur er í rannsóknum eða þróunarverkefnum b) hvort maður nenni að byggja upp langtíma vinatengsl.
Ég hef áður upplifað að skipuleggja svona alþjóðlegan viðburð þar sem fólkið sem var innanborðs var absolut ekki eins skemmtilegt. Það var reyndar sumarskóli doktorsnema í norðurslóðafræðum sem haldinn var sumarið 2003. Þar var finnsk eiturnaðra (reyndar virt fræðikona) sem eitraði stemninguna svo að við urðum fegnust þegar hún var komin upp í flugvél Icelandair. Jóhanna samstarfskona lét meira að segja færa henni bjór um borð, svo fegnar vorum við að sleppa undan þessum leiðindaskarfi.
Ég er eiginlega komin á þá skoðun að maður eigi ekki að leggja lag sitt við fólk sem að étur af manni hælana (hef kynnst þeim nokkrum) - heldur fyrst og fremst einbeita sér að hinum, og sem betur fer er fullt af slíku fólki eins og dæmin sanna.
Ég ræddi þetta við Guðbjörgu Lindu vinkonu og samstarfskonu fyrr í vetur og við vorum sammála um að lífið væri of stutt til að vera að vinna með leiðindapúkum. Við vorum líka sammála um að maður verður að passa upp á að vinna þvert á deildir, stofnanir og skorir til að fá sem mestan, bestan og breiðastan snertiflötinn.
Ég elska að hitta fólk sem hefur ástríðu fyrir því sem það er að gera - er fullt af áhuga og elju án þess að valta yfir aðra. Þannig fannst mér margir þarna sem ég náði að kynnast. Auðvitað eru margir kræklóttir kvistir í þessum háskólaheimi, þar sem persónuleg samkeppni manna í milli, oftast um fjármagn, viðurkenningu og heiður, er samofið vinnunni hvar sem er hvenær sem er.
Því miður hefur maður kynnst mörgum sem eiga við andlega bresti að stríða meðal háskólafólks, því fer ekki fjarri. Held kannski að það tengist einsemdinni yfir fræðunum, yfirálagi sem leiðir til kulnunar í starfi og svo mætti lengi telja.
Ég dansaði til klukkan fjögur í nótt. Eftir móttöku í Öskju í lok ráðstefnunnar - frumsýndi Vala vinkona leiklistaratriði um menningarfrumkvöðulinn í ferðaþjónustu. Það braust út mikill fögnuður yfir þessu atriði og mæli ég eindregið með því ef einhverjum vantar gott atriði til að gleðja samkomur. Við fórum síðan nokkur hópur saman á Thorvaldsenbar þar sem við snæddum, drukkum og dönsuðum.
Peter, Eddie, Daniel, Lars, Vala, Darrell, John, Maura og fleiri dönsuðu inn í nóttina á meðan að Suður- og Austur Evrópu fólkið og Taiwanarnir reyndu að spotta norðurljós. Takmarkinu er því náð. Að tryggja góðar minningar af ráðstefnunni og Íslandsferðinni.
En í dag geri ég lítið annað en að brosa, og liggja í leti. Ætla samt alveg örugglega bráðum aftur út að dansa.
Þá verður kannski komið vor á Íslandi -- því nú er að einbeita sér að styrkjaumsóknum, fjármálum, ferðaplönum, greinaskrifum og öðru áður en Ísland er kvatt að þessu sinni.
Dægurmál | Breytt s.d. kl. 18:25 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (4)
28.2.2008 | 23:21
Alveg svaka skemmtilegt!
Þetta er ástæðan fyrir því að ég er upptekin í augnablikinu. Það er alveg svakalega gaman að hitta fólk frá mismunandi löndum og heimsálfum og bera saman bækur sínar.
Sjávartengd ferðamennska, hátíðir, listir og viðburðir henni tengdir, matur, jaðaríþróttir ofl á semsagt hug minn allan um þessar mundir - og reynsla reynsluríks fólks frá öðrum svæðum heims sem ég ætla að nýta mér að heyra á næstu dögum.
Hlakka til en upplifi í augnablikinu mikið work overload. Gaman á meðan það er gaman.
Ferðalög | Slóð | Facebook | Athugasemdir (4)
27.2.2008 | 07:40
Háskólatengsl við Brasilíu
Ég lýsi hérmeð eftir frekari upplýsingum um Ingvar Elíasson haffræðing (held að það sé nafn hans) sem gerði garðinn frægan í Brasilíu og byggði upp öfluga haffræðideild við Háskólann í Sao Paulo um miðbik síðustu aldar.
Er í skýjunum af því að ég fæ líklega að skoða verksmiðjuna sem vinnur eldsneyti úr babassahnetunum (sjá umfjöllun fyrr í þessu bloggi).
Hér er tengillinn við Háskóla-tilraunastofuna í Ríkisháskóla Campinas (Universidade estadual de Campinas) sem ég verð við. Hún er innan skipulagsverkfræðideildar háskólans og er helguð sjálfbærri þróun (samspili félagshátta, skipulags og tækniþróunar).
25.2.2008 | 11:11
Aðgengilegt viðskiptasvæði
Gaman að sjá að nú á að gera skurk í að tengja eyjaríkin í Karabíska hafinu við Ísland, viðskiptalega, og þróunarsamvinnulega með Barbados sem útgangspunkt. Við eigum margt sameiginlegt með þessu fólki en það er líka annað sem er verulega frábrugðið. Barbados er vænlegur útgangspunktur bæði tungumálalega en líka sögulega þar eð eyjan er gömul bresk nýlenda og viðskiptamenning því ekki ólík þeirri sem við þekkjum þó með afrískum afbrigðum sé.
Ég held að þar liggji bæði heilmikil tækifæri fyrir Íslendinga og "Bajans" (þeir eru kallaðir það á Barbados) ásamt fleiri Karíbahafs-svæðum.
Það er alveg öruggt að hægt er að virkja sólarorku, sjávarorku og fleira á eyjunum, þó ég geri mér ekki grein fyrir hvort Íslendingar hafi neina sérþekkingu á því sviði.
Ég er mjög spennt fyrir því að við leggjum lóð á vogarskálarnar til að uppræta heimilisofbeldi og skapa börnum einstæðra mæðra meiri möguleika en nú er, stuðlum að auði í krafti kvenna meira en arfleifð nýlenduveldis breta þarna á eyjunni stuðlar að nú. Fjölskyldustrúkturinn þarna er víða sérstakur.
Þar býr og starfar íslensk kona sem ég held að eigi framtíðina fyrir sér. Hún heitir Hildur Fjóla og er að vinna við Unifem. Hún var með mjög fínan fyrirlestur rétt eftir áramót um ástand mála á þessum slóðum.
Það er aldeilis hægt að gera margt. Ég hlakka til dæmis til að fá almennilegan hrásykur þegar þeim viðskiptatengslum er komið á, og múskathnetur (ég er að verða búin með birgðarnar frá því ég var þar í sumar)...., elstu rommtegund Karabíska svæðisins , mangó og fleira. Ég er þó ekki viss um að við föllum fyrir "breadfruit".
Svo er líka verulega áhugaverður flötur á menningarsamskiptum af ýmsum toga. Mæli t.d með verkum Ras Ilix Heartman frá St.Andrews. Hann er með heimasíðuna www.diaspora-now.com
eða dreifþjóð nú!
![]() |
Utanríkisráðherra til Barbados í lok mars |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |