19.11.2008 | 10:59
Flott framtak um ferðamálaátak en stuðlið að meira samstarfi við fleiri!
Eins og fréttin gefur til kynna hefur flugrekstrarfyrirtækið Icelandair hafið samstarf við kreditkortafyrirtæki um að efla markaðsátak og fá Norður Ameríkana hingað yfir. Þetta átak er flott og ekki vanþörf á nú þegar að blæs um Frón. Mig langar þó að koma á framfæri til starfsfólks Icelandair að hafa einnig samstarf við fólkið á þeim svæðum sem fyrirtækið hyggst senda ferðafólkið til í ferðir, því það er engum til gagns bara að dæla inn fólki án forsjár. ...Og svo langar mig í framhaldi af því að hvetja fólk til að lesa hvatningu neistahópsins til aðila í ferðamálum sem birtist í fréttablaðinu í dag.
Stundum hefur fyrirtæki eins og Icelandair haldið sig bera höfuð og herðar yfir önnur ferðaþjónustufyrirtæki í landinu og ég vona bara að hugarfar stjórnenda þess fyrirtækis sé að breytast til hins betra. Einu sinni lenti ég í því að yfirmaður Icelandair cargo fannst ég bara ekkert of góð að bíða í hálft ár eftir pakka sem hafði týnst í þeirra fórum. Um daginn lenti ég í flugfreyju sem gat varla tjáð sig á Íslensku hjá öðru flugfélaganna (hvernig ætli hún tali þá erlend mál, ef þetta er vitsmunastigið? hugsaði ég).
Þjónustustig og framkoma er afar mikilvægt hráefni í ferðaþjónustunni og má alls ekki vanmeta. Vinnustaðirnir í ferðaþjónustu þurfa að hlúa að fagmennsku innan sinna raða og það er hægt að gera á marga vegu. Icelandair hefur í áratugi verið fánaberi í íslenskri ferðaþjónustu og oft hrundið af stað bylgjum í ferðaþjónustu á Íslandi vegna stærðar sinnar.
Samvinna þvert á hreppamörk og fagleg landamæri afar mikilvæg.
Þetta átak er liður í því og mætti vera meira af.
![]() |
Samstarf um að fjölga komum ferðamanna til Íslands |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
15.11.2008 | 19:08
Ísland í sárum
Kata vinkona mín sendi þessa grein sem birtist í Globe and Mail (morgunblaði þeirra Kanadamanna).
Öll greinin er á þessari krækju:
MATTHEW HART
The Globe and Mail
November 14, 2008 at 11:56 PM EST
REYKJAVIK - There was a man called Mord; he was called the Fiddle. He was the son of Sighvat the Red, and he lived at Voll in the Rang River Plains. He was a powerful chieftain and a great lawyer - so great a lawman that no case was thought to be legally judged unless he took part.
So begins one of the greatest Icelandic sagas, Njal's Saga. Generally, in Iceland's tales, the reader expects blood and is not disappointed. Men trudge about the country clouting each other's brains out in the bracing air.
But so important is this passage about Mord that American archeologist and Old Norse scholar Jesse Byock quotes it in the opening to his bestselling Viking Age Iceland - because, for all their chopping off of limbs and stealing of women, the sagas describe a people vitally concerned with how to conduct themselves, with what is proper and ethical in relations between people who had to regulate themselves in a society without rulers.
Today, Iceland is in ethical disarray, stripped by financial catastrophe of its image of itself. In real terms, the gross domestic product has crashed by 65 per cent. The island faces a sudden spasm of depopulation as Icelanders prepare to flee in search of work. Anger, shame and dread have spread like pathogens. They depress the mood of this northern capital as much as the empty construction sites and the gallows of idle cranes.
A woman holds a cardboard as she takes part in a demonstration in central Reykjavik, Iceland, on Nov. 8, 2008 calling on the government to resign and for banks to be more open about the country's financial crisis. Between 3,000 to 4,000 protesters turned out on the fourth consecutive Saturday of demonstrations, with numbers growing each week. (Halldor Kolbeins/AFP/Getty Images)
Related Articles
Recent
From the archives
- IMF demand forces Iceland to raise rates
- Iceland seeks $4-billion more in aid
- Iceland raises rates sharply, others poised to cut
- Iceland hikes key rate by 6 percentage points
Internet Links
In less than a generation, Iceland had transformed itself from Europe's poorest country into one of its richest. It took a scant eight years of frenzied expansion for the country's banks to help buy companies worth nine times Iceland's GDP. When the banks collapsed in October and Iceland's currency, the krona, began to fizz away, the country found itself transformed in a few weeks of headlines from rampaging Viking tiger to global deadbeat - a country whose bankers had annihilated not only the security of their countrymen but the savings of tens of thousands of other depositors, particularly in Britain.
Iceland now confronts appalling choices. There will be no rescue package until it settles with foreign depositors. And if it does reach some accommodation, and seeks the further safety of full membership in the European Union, EU rules would strip it of control of its fishery - a horrifying prospect for Icelanders. The fishery is freighted with emotion as the resource that single-handedly pulled Iceland out of the medieval age and for which it fought three bitter "cod wars" with the British.
However Iceland plays its cards, its hand is a bad one. Perhaps its best hope lies in its sense of itself as a people united by a history of survival and a cherished culture.
By the book
Reykjavik after the fall: A thin rain slicks the sidewalk with wet ice. Swans wrangle over bread beside the city hall. In a tiny square, a bronze patriot stands on a plinth and gazes through the weather at the dark grey parliament, the Althing. Then the Borg Hotel and the narrow thoroughfare of Austurstraeti. The only shop with any life on a late fall afternoon is Eymundsson the bookseller. Packed. An Icelander can always read.
Some of the books they are buying got their start right here in a coffee shop and bar called Hresso that has sent a steady trickle of writers out into the world pumped with coffee and ideas. One of them, Bragi Olafsson, comes in from the rain and peers at me through round tortoiseshell glasses that give him an owlish look. We commandeer a red banquette and sit in the rain-streaked window wondering what is to become of Iceland.
"What people are mostly saying is that there will be a very dramatic change in our way of thinking. We have been very greedy - a very rude society. You know - people in Range Rovers talking on their phones and honking horns. But almost overnight this has changed."
Mr. Olafsson is a poet and prize-winning novelist. The Pets, his first novel translated into English, sold 5,000 copies in Icelandic - a bestseller in a country of scarcely more than 300,000. He is one of a small group of leading writers salaried by the state. Nurturing writers is state policy in Iceland, where the written language has remained almost unchanged for 1,000 years.
"The only answer now is to join the EU and throw away the krona," Mr. Olafsson says with evident despair. "There are even talks of joining Norway. I don't want to be against it because I don't understand it, but culturally and aesthetically I don't want to be Norwegian. I hate their language."
Continued on Page 2...
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 19:13 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
7.11.2008 | 12:57
Grundvöllur frekari Evrópusamruna er að bresta
Samstaða milli ríkja er auðveldari þegar að vel árar en illa eins og ein laglína Pink Floyd hljómaði á The Wall plötunni. Together we stand - divided we fall.
Í dag hittast leiðtogar ESB ríkjanna á krísufundi í Brussel til að reyna að vinna að samræmdri áætlun. Samkvæmt Information eru líkur til að það takist afar litlar eins og heimsmálum er háttað í augnablikinu. Í greininni er ennfremur greint frá því að Zarkosy sé nær eini þjóðhöfðinginn sem að sé að reyna eitthvað í augnablikinu.
Þjóðirnar hafa ekki enn viljað ganga að samningum um 11 punkta plan sem hann hefur reynt að setja fram með samræmdar aðgerðir í huga.
Grikkir og Írar hafa þegar farið aðra leið og svo virðist einnig sem brestur sé á trausti Angela Merkel og Gordon Brown til Zarkosy og tilrauna hans til að þétta Evrópu saman í aðgerðum. Þau telja að umfang málsins sé svo stórt að það þurfi að grípa til aðgerða í fjármálakerfi heimsins.
Það merkasta í þessari framvindu er auðvitað að Evrópusamruninn stendur á krossgötum og er til prófs. Mun samstaðan splundrast og myntsamstarfið leysast upp í kjölfarið? Mun ESB löndunum takast að halda saman á vígvelli fjármálakreppunnar? Það mun sagan leiða í ljós.
Eins og skrifað er í Information
"Nicolas Sarkozy var endnu mere direkte. Den hyperaktive franskmand gjorde sig til talsmand for en konkret pakke, der ligesom det lovforslag, der behandles i den amerikanske kongres, skulle sikre Europas bankvæsen. Men i går sagde han, at han var blevet "fejlciteret". Han havde fået kolde fødder. Det er nu, fællesskabet skal stå sin prøve. Det er formålet med EU at stå sammen i krisesituationer".
Hugmyndin um að viðskipti milli þjóða stuðli að friði er komin frá Þýska heimspekingnum Immanuel Kant og er að mörgu leyti hugmyndafræðilegur grunnur Evrópusamstarfsins sem þróaðist uppúr rústum stríðsátaka í Evrópu. Það var í sjálfu sér byltingarkennt á sínum tíma. Aukin Evrópusamruni og innri markaður með myntbandalagi átti enn frekar að tryggja friðsamleg viðskipti.
Það voru fræðin, eins og segir í greininni. En framvinda á síðastliðnum dögum bendir til að kenningarnar sé ekki hægt að sannreyna í alvörunni. Grundvöllur efnahagssamstarfs og efnahagssamruna (ESB) er samstaða. Og ef samstaðan er að bresta er grundvöllurinn að bresta.
Fram að 1930 var í gangi myntbandalag milli Belgíu, Frakklands og Sviss. Þar hét myntin Franki alveg fram að gjaldmiðilsskiptum í Evru. En þegar að heimskreppan skall á varð meira sundurlyndi og þessi þrjú lönd hættu við samstarfið vegna þess að þau höfðu nóg með sjálfa sig. Belgískur franki, Svissneskur franki og franskur franki var því arfleifð frá fyrra myntsamstarfi sem allir voru búnir að gleyma þegar að Evrusamstarfið var tekið upp nokkrum áratugum síðar.
Ætli við séum að sjá fram á að spádómur Pink Floyd verði að veruleika?
Together we stand. Divided we fall.
Hvað ætli þetta hafi í för með sér fyrir ESB þreifingar Íslendinga?
7.11.2008 | 00:18
Alþjóðagjaldeyrissjóðurinn blæs í lúðra til samræmdra aðgerða
6.11.2008 | 22:56
Rússum finnst íslenskt loftrými aðlaðandi
Það heldur áfram að maður nái helstu fréttum um aðstæður Íslands erlendis frá þessa dagana.
Norskur miðill segir frá því í dag að Íslensk yfirvöld hafi af því verulegar áhyggjur að rússneskar herþotur hafi flogið yfir Íslensku loftrými án leyfis 18 sínnum, já ég endurtek 18 sinnum á árinu.
Utanríkisráðuneyti og Dómsmálaráðuneyti vinna í því að fá svör við þessum ótrúlega freklegu heimsóknum. Norðmenn spekúlera í því hvort að baki liggji ósk um að fá aðgang að Íslandi í hernaðarlegum tilgangi en alkunna er að Rússar eru nú af fullu kappi að hervæðast, ætla að ná fyrri stórveldisstöðu gegnum herbrölt. Eins spyrða norðmenn heimsóknirnar við að Ísland sé óvarið bæði hernaðarlega og fjárhagslega um þessar mundir og því sérlega aðlaðandi.
Þetta er allt saman áhyggjuefni..án þess að maður geri of mikið úr þessu.
![]() |
Rússar koma upp skammdrægum flugskeytum |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
6.11.2008 | 13:22
Alþjóðagjaldeyrissjóðurinn og lýðræði!
Ég man ekki betur en að forsvarsmenn IMF hafi fengið umsóknir Ungverjalands og Úkraínu nokkuð seinna en umsókn frá Íslandi. Síðan það gerðist hafa efnahagsmál heimshagkerfisins haggast á verri veg og nú er sjóðurinn farinn að birta á heimasíðu sinni í sambandi við umfjöllun um lánafyrirgreiðslu til Íslands, að það séu nú aðrar þjóðir sem þurfi ef til vill líka á aðstoð að halda. Það hefur semsagt breyst hljóðið í strokknum
Það sem ég veitti sérstaka athygli í þessari frétt er að Fjármálaráðherra segir í raun að ekki sé hægt að upplýsa lýðræðiskjörið þing um skilyrði sjóðsins í samningsdrögunum þar eð yfir þeim sé gagnkvæm leynd.
Á síðu sjóðsins segir einnig
The IMF is in discussions with a number of other countries about possible financing needs, and is providing confidential policy advice to governments in emerging and developing economies on how to adapt to the current turmoil.
Sjóðurinn er semsagt að prjóna leynileg stefnuviðmið fyrir stjórnvöld í þeim löndum sem að munu þurfa að laga sig að efnahagsglundroðanum.
A) Í fyrsta lagi er hér víðsjárverð orðmótun sjóðs sem hingað til hefur flaggað að vera lýðræðislega stefndur. Þeim finnst greinilega þarfaþing að móta leynilega stefnu (sem í raun þýðir að ekki ríkir gegnsæi í samningum)...þó auðvitað komi ekki hér fram að lýðræðislegum stjórnarháttum, t.d kjörnum þingmönnum sé ekki stætt að sjá drög samningana á meðan að stjórn IMF hafi ekki einhlýtt samþykkt lánaskilyrði. Það er túlkun fjármálaráðherra.
B) Er þá hægt að túlka það svo að búið sé (án vitundar almennings eða tilkynningar) að gera valdarán á Íslandi þar sem lýðræðinu, stjórnsýslulögum og upplýsingaskyldu stjórnvalda gagnvart kjósendum og lögkjörnum fulltrúum inni á þinginu - hefur verið hent fyrir róða.
Ég bara spyr?
![]() |
Samskipti við IMF í hnút |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
5.11.2008 | 23:25
Kannski svolítið svipað og Glitnisbanki gerði í Noregi
Mynd af fundi íslenskra fjármálamanna frá Glitni í Noregi vorið 2008. Fiskur er bara arður af hlutabréfum?????!!!!!
![]() |
Notaði seðil með mynd af Davíð |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
5.11.2008 | 21:58
Breytingarnar verða einnig að koma að innan
Ég vaknaði með gleði í hjarta í morgun, vonbetri um breytingar þó að á brattann sé að sækja.
Fór síðan á fróðlegan fyrirlestur Andrew Cottey á vegum alþjóðastofnunar Háskóla Íslands um Alþjóðlega fjármálakreppu og stöðu Kína í alþjóðasamfélaginu á breytingatímum.
Sá fyrirlestur var býsna fróðlegur. Veldi Kína í heimshagkerfinu hefur styrkst og tekið eðlisbreytingum á 21.öldinni og Kína er nú að fullu þáttakandi í hnattvæðingunni. Kína er ekki bara ein helsta útflutningsþjóð heims heldur er ríkið þáttakandi í fjölhliða alþjóðlegum samningum og stofnunum og í pólítiskum samböndum. Kínverjar hafa umtalsverð bein áhrif í leit að orku og hráefni í öðrum löndum (t.d Súdan, Afrískum ríkjum, Íran og jafnvel hér á Norðurslóðum). Kínverjar taka orðið þátt í þróunarhjálp og eru því í meira mæli orðinn framlagsþjóð fremur en viðtakendaþjóð í því samhengi. Mjög stór fjárfestingarsjóður (China Investment Corporation) tekur þátt í að fjárfesta í viðskiptatækifærum erlendis og notuðu Kínverjar um 30 milljarða Bandaríkjadala til slíks á árinu 2008. Kínverjar beita áhrifum sínum alþjóðlega í menningarsamskiptamálum í gegnum 220 Konfúsíusarstofnanir sem eru staðsettar um allan heim (Hér á landi er meðal annars ein þeirra).
Ný heimsmynd blasir við í kjölfar alþjóðlegrar efnahagskreppu þó ekki sé ljóst hvers lags kapítalismi muni verða ríkjandi á komandi árum. Eitt er þó víst að mestar líkur eru á að hið ráðandi þríeyki í viðskiptavöldum heimsins muni verða meira fjölpóla og innan þess munu t.d Bandaríkin missa nokkuð af fyrri stöðu sinni ásamt hugsanlega hlutum af Evrópu. BRIC ríkin (Brasilía, Rússland, Indland og Kína) eru lönd sem mjög líklega verða voldugri en stóru sjö iðnríkin sem nú leggja línur í heimsviðskiptamálum (G7 löndin). Með viðskiptavöldum flytjast einnig pólitísk völd þannig að fyrirséð er að fyrir dyrum standi djúpstæðari breytingar á alþjóðastofnunum sem hingað til hafa nær eingöngu ríkt á vestrænum/bandarískum viðskiptagildum - t.d Öryggisráð Sameinuðu þjóðanna, klúbbur hinna stóru iðnríkja G7, alþjóðagjaldeyrissjóður og heimsbankinn og heimsviðskiptastofnunin (WTO)).
Margt annað áhugavert kom fram.
Settist síðan fyrir framan tölvuna og fékk þá póst frá félagsmiðstöð í Dublin sem að heitir Cultivate Centre og Eric gamall vinur minn úr grænakortinu vinnur við. Einhvern tímann hefur hann smellt mér á póstlistann svo að ég fæ alltaf fréttabréf miðstöðvarinnar send. Ég hef gaman af að sjá hvað menn eru að gera og hugsa þar.
Í dag barst þessi líka voðalega notalega kveðja frá Amma sem hafði verið í heimsókn í miðstöðinni í Dublin. Nei! Hugsaði ég. En gaman þeir eiga líka ömmu í Dyflinni eins við börnin á Íslandi, og ímyndaði mér um leið ástríka, mjúka og vísa ömmu sem alltaf tæki manni brosandi hvernig sem viðraði innan sem utan.
Þegar ég fór að leita mér frekari upplýsinga um hver Amma væri kom í ljós að hún er Indverskur Gúru (svo að hún væri vís eldri kona passaði jú alveg).Hún heitir fullu nafni Sri Mata Amritananda.
Ég læt fylgja hér fylgja hennar orð. Enda er það víst alveg satt - að ástin er besta ljósið - hún fær okkur til að framkvæma og er því oft hvati að góðum breytingum.
The culprit Amma said was man's obsessive focus on money. "While meditating on money and luxuries, we forget to live," Amma said. "We forget the very love that lends life to life."
Amma went on to say that life is an opportunity provided by God for humans to grow and expand. "That which brings order, purity and meaning to life is man's thoughts and actions," Amma said. "Unfortunately, the only meaning we attribute to life today is as an opportunity to make money. In order to achieve this end, the human intellect is ready to accept any means. No wonder values are deteriorating!"
Amma then explained how spirituality is not opposed to earning money or fulfilling desires, but that one should always maintain a balanced outlook. "Wealth and the human-ness' are two sides of a scale. We need to make sure that they remain balanced," Amma said. "That is the reason why our saints and seers stressed that the pursuit of artha and kama-money and pleasure-should never come at the expense of dharma."
Speaking about deterioration of values in society, Amma said that a change was very much needed.
However she said that the needed change was primarily internal-
![]() |
Breytingar hafa knúið dyra |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
5.11.2008 | 15:07
Ástin er besta ljósið
Svart ljós í myrkri sagði Hallgrímur Helgason. Hann er svo orðheppinn að það hálfa væri nóg.
![]() |
Svart ljós í myrkri |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
5.11.2008 | 00:37
Verður Repúblikani forseti næst
Það er mjótt á muninum milli McCain og Obama akkúrat núna en ég vona að Obama takist að merja það í gegn að ná forsetakjöri þó ég hafi verið fylgiskona Hillary Clinton. Næstu ár verða erfið nýjum forseta Bandaríkjanna hvor sem verður kjörinn. Það er rík ástæða til að vænta þess að verði Obama, fulltrúi demókrata kjörin nú muni næst verða kjörin repúblikani vegna þeirra víðsjárverðu tíma og óumflýjanlegu gildisbreytinga sem blasa við. Þær geta reyndar gefið bakslag því það eina sem ljóst er nú er að hver svo sem verður kjörin mun þurfa að ríkja í talsverðum glundroða fjármálakreppu og þess vegna mótvindi. Það er alltaf þægilegra að vera forstjóri/forseti/í fararbroddi þegar vel árar en þegar illa árar. Við eigum mjög ljósa birtingarmynd þess í mörgum forstjórum góðæris hér á Íslandi, bara svo aumkunarverð dæmi séu tekin.
Kannski er of fljótt að spá um að verði Obama fyrir valinu muni það væntanlega þýða tryggingu repúblikans forseta næst þar eð ljóst er að við erum stödd á frekar sögulegum tímum í stjórnmálum þjóða og efnahagsmálum -- en eitt er víst að kvöldið í kvöld er spennandi.
ÉG vona að Obama verði fyrir valinu þrátt fyrir það. Ég hef trú á kauða þrátt fyrir að hafa verið mikil fylgiskona Hillary á meðan á prófkjöri stóð.
![]() |
Fyrstu kjörstöðunum lokað |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |