Góð fyrirheit

Ég var svo stolt af mér í gær. Ég mætti í ræktina og fór í sund! Jibbí janúar er byrjaður og nú þýðir ekkert annað en að láta sitt ekki eftir liggja. Ég er reyndar engin aerobic drottning og verð seint, þigg frekar góða sveiflu eins og salsa- eða Jóga til að vinda ofan af sér og hlaða andlegri orku upp.

 Eitt af áramótaheitunum í ár var að gera allavega einu sinni á dag jógaæfingar - fyrir líkama og sál.

Ég fann þetta á netinu og set það hér

- þó að maður eigi að muna að maður er manns gaman og að það er miklu skemmtilegra að mæta í leikfimisalinn og bugða sig og beygja en að standa fyrir framan tölvuskjá og gera slíkt hið sama.

toditruþur


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Bravó vinkona! Byrjar árið með stæl.

Gaman að vera komin í næsta nágrenni við þig :)

bb

Björg (IP-tala skráð) 7.1.2008 kl. 11:15

2 Smámynd: Anna Karlsdóttir

Elsku Björg

Við verðum endilega að halda upp á það bráðlega og borða saman hádegismat í hámu.

Anna Karlsdóttir, 7.1.2008 kl. 18:54

3 identicon

Absalútt!
Ávallt reiðubúin :)

Björg (IP-tala skráð) 8.1.2008 kl. 10:57

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband