Ályktun um strætó

Haldinn var opin fundur Samtaka um billausan lífstíl um niðurskurð á þjónustu Strætó í  Útgerðinni þann 26. janúar 2011 kl. 20:00.

 

Ályktun strætóhóps Samtaka um bíllausan lífsstíl vegna fyrirhugaðs niðurskurðar á þjónustu Strætó.

Mótmælt er fyrirhugaðri skerðingu á þjónustu Strætó með styttingu aksturstíma á kvöldin og um helgar. Á tímum samdráttar þegar einkabílum fækkar er mikilvægt að bjóða upp á nothæfan valkost í samgöngum með Strætó. Þótt að skerðing þjónustunnar valdi væntanlega minnstum skaða þegar minnst eftirspurn er eftir henni minnkar hún möguleika Strætó til að vera þessi valkostur.

Lýst er yfir skilningi á hækkun á verði þjónustu Strætó. Strætó er mjög ódýr valkostur fyrir fasta notendur í samanburði við kostnað við bílaeign og í samanburði við verð á þjónustu almenningssamgangna á Norðurlöndum.

Leggja þarf áherslu á að viðhalda þjónustu á öllum tímum dags, þ.m.t. á kvöldin og um helgar til að tryggja hlutverk strætó sem grunnþjónustu fyrir alla. Þjónustutími strætó þarf að vera frá um 6:30 á morgnanna til um 24:00 á kvöldin virka daga en frá um 8:00 til 24:00 um helgar.

Kanna þarf raunsparnað niðurskurðaraðgerðanna fyrir sveitarfélögin, ríkið, fyrirtækin og almenning.

 

Framtíðarsýn um strætó í almannaþjónustu

Mælt er með því að sveitarfélög á höfuðborgarsvæðinu, ríkið og Vegagerðin setji sér sameiginlega stefnu um þjónustu almenningssamgangna á höfuðborgarsvæðinu og við nágrannabyggðir. Í þeirri stefnu ætti að felast eftirfarandi:

l  Strætó verði besti kosturinn til samgangna á svæðinu hvað varðar ferðatíma og kostnað.

l  Markmið verði sett um meðalhraða og aksturstíma vagna. Til þess þarf m.a. að fjölga forgangsakreinum fyrir strætó. Einnig að færa vegi að þörfum strætó og fækka eða breyta hraðahindrunum.

l  Markmið verði sett um fjarlægð heimilis frá biðstöðvum.

l  Markmið verði sett um fjarlægð biðstöðva frá helstu vinnustöðum. Sú fjarlægð verði skemmri en fjarlægð frá bílastæði vinnustaðar.

l  Stefnt verði að upptöku samgöngusamninga á helstu vinnustöðum og verði skattlagning jafngild á greiðslum skv. samgöngusamningum og á bílastæðum.

l  Markmið verði sett um þjónustu á skiptistöðvum og biðstöðvum.

l  Stefnt verði að bættri þjónustu og aukinni tíðni vagna sérstaklega á annatíma.

l  Stefnt verði að bættri þjónustu á norður suður ás um Reykjanesbraut.

l  Stefnt verði að stækkun þjónustusvæðis strætó að Borgarnesi á Vesturlandi og til sveitarfélaga á Suðurnesjum og flugstöðvarinnar í Keflavík. Í því sambandi kemur til greina að hafa endastöðvar almenningsvagna sem ríkið styrkir til samgangna á landsbyggðinni í Borgarnesi og á Selfossi.

l  Í skipulagsmálum verði umferð almenningsvagna sett í forgang og tryggður aðgangur vagna að helstu þjónustukjörnum og miðstöðvum. Ótækt er að láta fólk ganga 500 m um bilastæðaflæmi þar sem ekki er gert ráð fyrir gangandi fólki eins og víða er regla í skipulagi við stærstu vinnu- og verslunarstaði.

l  Bætt verði sölukerfi miða og korta. Til dæmis settir upp sjálfsalar þar sem margir koma í íþróttamiðstöðvum, skólum og verslunarkjörnum.

l  Sveitarfélög á þjónustusvæði strætó aðlagi skólahald í fyrsta tíma á morgnanna og í leikfimi, sundi og öðru skólahaldi að þjónustu strætó. Á móti kemur Strætó til móts við þarfir skóla eins og hægt er. Á móti má minnka notkun á sérstökum skólaakstri og spara með því að reka aðeins eitt almenningssamgöngukerfi.

l  Skoða þarf misræmi í skattlagningu hins opinbera á almenningssamgöngum í þéttbýli og dreifbýli og haga skattlagningu þannig að rekstur á umhverfisvænum vögnum eins og metan vögnum verði hagstæður.

 

 

Strætóhópur Samtaka um bíllausan lífsstíl

Anna Karlsdóttir

Claudia Overesch

Árni Davíðsson

Magnús Jensson


mbl.is Um 85% ánægðir með þjónustu Strætó
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband