Færsluflokkur: Stjórnmál og samfélag

Hvernig urðu þessir peningar til?

Trúkerfi í fjármálahagkerfi riðar til falls. Það gera allar bólur sem eru innantómar ekki er innistæða fyrir.

Sjá áhrifamikið vídeó sem útskýrir m.a. hvernig stofnanir vestræns samfélag urðu meðvirkar (kóuðu) bóluna og hvernig peningar sem aldrei voru til urðu hluti af fjármálakerfinu.

Linkur

http://video.google.com/videoplay?docid=7065205277695921912&hl=en  


Göngum hægt um gleðinnar dyr!

Þetta eru jákvæðar fréttir fyrir sjávarútvegsgreinina að norsk-íslenska síldin heimsækji hafsvæðið fyrir vestan. Vonandi ganga menn af virðingu fram í að nýta hana án þess að ganga á auðlindina og endurtaki nú ekki sömu mistökin og voru gerð á gullaldartímabili síldveiðanna hér við land.

Það er alltaf viss hætta á að fólk fari offari í kjölfar hnýpni yfir missi. Nú mega Íslendingar ekki missa sig í einhverju æðinu - það er bara alveg rosalega mikilvægt. Þetta eru jákvæðar fréttir og vonandi stanzar stofninn við í svolítinn tíma svo við getum notið ávaxta hans.

Ég er að fara í Stykkishólm á morgunn og ætla að dvelja þar í viku ásamt fögrum hópi landfræðinema og ferðamálafræðinema sem eru að gera fyrstu alvöru rannsóknarverkefnin. Ég vona að þau hagi sér vel, leggi sig fram, læri, sýni félagslegan þroska og samstöðu í verki, og verði sér  og Háskóla Íslands til sóma.

 Þá get ég gengið niður á bryggju og spáð og spekúlerað með sjómönnunum - það verður gaman.

 


mbl.is Á síld innan við Stykkishólm
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

...Og ennþá berast samúðarskeyti frá vinum erlendis.

Ég fékk skeyti frá góðri vinkonu og samstarfskonu - Maritu Rasmussen - hún er framkvæmdastjóri samtaka atvinnulífsins í Færeyjum. Hún hefur þetta að segja:

Hey Anna

> Hvordan går det? Jeg tænker på dig (og de andre på Island) i disse dager.

> Hvordan går det med dig og guttene? Du må sige fra om det er noget jeg kan

> gøre for deg - ok? Vi på Færøerne er meget bekymrede og redde for våre

> venner - MEN vi ved at islendinger har en stor vilje og ukuelighed.

>

> Jeg er i Brussel på møder. I dag havde vi møde med den islandske ambasadør

> i

> EU, som forklarede os om situationen.

>

> Ha det bra

> klem fra

>

> Marita

 

Það vermir mitt hjarta að eiga fólk að erlendis sem hugsar hlýlega til okkar þjóðarinnar. Færeyingar frændur okkar lentu í efnahagslegum hremmingum og þrengingum í byrjun tíunda áratugarins, svo þar eigum við góða félaga.

Við skulum bara vona að það gerist ekki hér sem gerðist þar, að þeir sem minnstu þanþolin höfðu fylltu upp skjalatöskur af seðlum og flúðu land. Það var ekki góð samstaða. Reynum að koma í veg fyrir það.

 

 


mbl.is Einhver erfiðasta vika í seinni tíð
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

fáðu þér Hemma Gunn í sálina á þér!

Sá alveg frábært myndband með hverjum öðrum en Þorsteini Guðmundssyni í aðalhlutverki ásamt góðum hópi söngvara, leikara og annara leikmanna er búa á þessu landi. Kíkið á síðuna hans, þetta er greinilega mikill háðfugl.

hvitiriddarinn.blog.is

og

myndbandið

 


Ísland - Oblast númer 47?

Eg skrifadi thetta sem svar vid faerslu Salvarar - en laet thad fljota her med. 

Eg er nokkud viss um ad Bretar eiga i mikilli baráttu um thessar mundir og thad er fyrst nuna sem ad margir thjodhöfdingjar i Evropu eru ad taka almennilega vid ser. Thad er pinulitid seint i rassinn gripid, og thvi er margt sem bendir til ad fleiri riki fylgi i kjolfarid. Nordmenn eru bunir ad missa allar oliutekjur sem their logdu til hlidar til mögru áranna um 1000 norska milljarda (thad er talsvert). Norsk stjornvöld reyna nu ad fela thessa stadreynd fyrir borgurum sinum (samkvaemt norskri vinkonu og samstarfsfelaga) - folk er thvi rett ad atta sig á umfangi fjarmalakreppunnar.  Hvad vardar barattuna um Nordurslodir, tha  var eg spurd hádslega af Finnum hvort ad nu maetti lita a Island sem Oblast númer 47 i Russlandi. Eg hlae bara med - thad thydir vist ekki annad en ad lata thetta ekki fara med andlega heilsu, thad vaeri arfaslaemt.

Ad öllu grini slepptu liggur Island vel vid í geo-politisku samhengi thar sem ad um 18% heimsforda Olíu er ad finna í Nordanverdu Atlantshafi og Barentshafi - og um 30% gasforda heimsins. Thad er nefnilega vist svo ad fjarmalakreppa og orkukreppa geysa badar nu um thessar mundir.


mbl.is Mestu mistökin
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Alltaf gott að benda á ytri óvin þegar óreiða er heima fyrir!

Ég ræddi þetta mál við kollega mína bandaríska, breska, Kanadíska, danska og norska í dag að Brown og Darling ætluðu að setja hryðjuverkalög til höfuðs Íslendingum. Það göptu allir og fannst að slíkt væri ekki til hróðurs fyrir Brown og hans stjórn sem nú leitar allra ráða til að afvegaleiða eigin þjóð og beina athygli frá eigin vandræðagangi í alþjóðlegri fjármálakreppu. Bretinn í hópnum sagðist skammast sín og var fegin að búa í Kanada nú um stundir. Ég er annars búin að vera að fá atvinnutilboð en ekki veit ég hvort að það er á þeim forsendum að nú verði erfitt að búa á Fróni´eða hvort það er af því að fólki finnist ég fýsileg til vinnu. Ég er að hugsa um að halda mig við ástkæra Frón - nú ríður á að sýna að við getum staðið saman í gegnum þykkt og þunnt og við höfum til margs að vinna.Ég vil taka þátt í því, ég er hvort eð er vön að vera staurblönk.

Það sem er svo lágkúrulegt í þessum hótunum Brown og félaga er auðvitað að þeir halda að þeir komist upp með að firra sig ábyrgð á eigin gjörðum við að benda á ytri óvin. En nú um stundir ber enginn heilvita maður virðingu fyrir slíku, því það er allt undir...og dómínó áhrifin eru bara meiri en svo að litla Ísland, þrátt fyrir oflæti örfárra auðkýfinga, spili afgerandi rullu í þeim hremmingum.


mbl.is Brown: Viðhorf íslenskra stjórnvalda óviðunandi
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

kveðjur frá Umeaa!

Ég er stödd á ráðstefnu vegna heimskautaársins í vísindum og hug- og félagsvísindahluta rannsókna helguðum árinu. Hér er mikið að gömlum kunningjum sem allir spyrja mig áhyggjufullir hvernig okkur íslendingum muni nú reiða af í fjármálaumrótinu. Ég brosi bara mínu blíðasta og hugga fólk, segi að við Íslendingar séum þrælduglegir og að við munum vinna okkur útúr þessu. Hér finnur maður góða strauma frá Rússum, Svíum, Grænlendingum, Kanadamönnum, Bandaríkjamönnum, Norðmönnum, Dönum, Lettlendingum, Hollendingum og fleirum. Mjög margir þessa fólks á góðar minningar frá Íslandi annað hvort í tengslum við störf á vettvangi Norðuskautsráðsins, utanríkismála fyrir þjóðir sínar eða hafa komið á vegum hinnar frábæru stofnunar Vilhjálms Stefánssonar. Allir tala vel um okkur og óska okkur hins besta. Af þessu má merkja að við erum vel kynnt erlendis og það ekki endilega fyrir glannaskap heldur allt eins fyrir að vera hugsandi fólk sem hefur heilmikið fram að færa í alþjóðastarfi á mismunandi vettvangi.

Ég átti þeirrar gæfu að njóta að hlusta á yndisleg verk Þorkells Stefánssonar, spiluð af Íslensk bandaríska píanóleikaranum Kristínu Jónínu Taylor. Hún var hreint út sagt frábær og ekki spilltu fyrir yndisleg, grallaraleg tónverk Þorkells.  Ég var eini Íslendingurinn í salnum og var stolt af því að eiga svona hæfileikaríka konu sem vill kenna sig við Ísland (þó hún sé alinn upp í BNA) og sem miðlaði verkum Íslensks meistara. Margir gestanna höfðu á orði við mig, m.a Kanadíski sendiherrann, að þetta væri Íslenskt kvöld. Það þótti mér vænt um. Við eigum alveg svakalegan mannauð í fólki sem er margt til lista lagt og hefur lagt mikið á sig til að færa umheiminum hugverk af ýmsu tagi, á ýmsum sviðum lista og vísinda, tækni og þekkingar.

Gleymum ekki því!


Umheimurinn fylgist vel með störfum þingsins!

Jahérna, ég sem ætlaði að nota kvöldið fyrir ráðstefnu-undirbúning sem ég þarf að fara á (langar reyndar lítið að yfirgefa landið eins og stendur)

...og mér eru þegar farin að berast samúðarskeyti utan úr heimi, skype símtöl að utan þar sem erlendir samstarfsmenn og félagar lýsa yfir samúð sinni og segjast vera með okkur íslendingum í anda.

Mér er eiginlega hálf óglatt yfir þessu en reyni að bera mig vel, eins og sannur Íslendingur myndi reyna. Harka af mér grátstafina í kverkunum, eins og hún Jóhanna félagsmálaráðherra áðan, og reyni að láta ekki bera á alvörunni í augunum eins og Þorgerður Katrín menntamálaráðherra. Þakka bara pent fyrir mig.

Læt hér fylgja línur frá bandarískum félögum sem ég fékk fyrir um stundu. Það hlýjar mér um hjartaræturnar en gefur mér vísbendingar um túlkanir umheimsins á aðgerðunum yfirvofandi.

Iceland's financial breakdown is our breakdown. Marg and I are grieving over
our country's past decisions, and how that has precipitated a world-wide
financial crisis including Iceland. Our only hope is that this crisis will
awaken enough Americans to elect Obama and a democratic Congress. That won't
be a quick fix, but we strongly believe that it will move us in the right
direction.
 

 


mbl.is Verður að lögum í kvöld
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Hægt að tala kreppu í fólk!

Ég var á fundi áðan þar sem að orðrómur barst inn á að hér á landi væri allt á hverfanda hveli og ég verð að viðurkenna að eftir nokkra hríð að hafa maldað í móinn með hughreystingarorðum og bjartsýnishjali heltók mig tilfinning sem að öskraði inni í mér. Anna: Hvað ef....á ég þá að fara að hlaupa útí banka og sækja þessu örfáu aura sem þar liggja inni og bara fara að hamstra mat svo að við sveltum nú ekki heilu hungri í fjölskyldunni næstu vikurnar meðan að hrina ófaranna geisar yfir.

VAKNAÐU

Einhverra hluta vegna er ansi íslenskt að allir haldi stóískri ró þangað til að eldur er orðinn að báli og þá er hin íslenska stjórnunarleið gjarnan að slökkva elda í stað þess að hafa séð til þess að eldar brytust ekki og breiddust út.

Ég er auðvitað sjálf í vafa hverju maður á að trúa. En........varð glöð þegar ég fékk tilkynningu sem ég set hér að neðan....og minni fólk á að það er hægt að tala kreppu í fólk.

Við erum aldrei í meiri kreppu en við teljum okkur trú um. Minni á að íslenskar landbúnaðarafurðir eru bara ágætar og lambshjörtu kosta einungis 187 kr. kílóið í Bónus. ...og svo er hægt að hjóla.

Aðgát skal höfð

 

Umræða um samdrátt og niðurskurð í atvinnulífinu með beinum afleiðingum fyrir heimili og fyrirtæki er mjög hávær og rökin fyrir henni skýr. Þetta er alvarleg umræða sem snertir unga sem aldna og þar af leiðandi er mikilvægt að vanda orðaval til að valda börnum, ungmennum, veikum og öldruðum ekki óþarfa kvíða. Þá þarf að gæta þess að umræða um þennan vanda á vinnustöðum sé á þann veg að fólk festist ekki í hringiðu umræðunnar heldur sinni vinnu og verðmætasköpun, sjálfum sér og samfélagi til hagsbóta.

 

Mikilvægt er að fjölmiðlar og aðrir vandi þessa umræðu og hafi í huga að flutningur fregna af válegum atburðum er bestur ef jöfnum höndum er fjallað um lausnir vandans þannig að fólk geti brugðist sem best við.

 

Það er brýnt að hafa í huga að óvönduð umræða um mál af þessu tagi er skaðleg heilsunni og því mikilvægt að vanda hana í hvívetna og láta hana ekki fara úr böndum.

 

Kristinn Tómasson, yfirlæknir VinnueftirlitsinsSigurður Guðmundsson landlæknirÞórólfur Þórlindsson, forstjóri Lýðheilsustöðvar

Sjá ennfremur heimasíður stofnananna!  www.vinnueftirlit.is, , www.landlaeknir.is , , www.lydheilstod.is

 


mbl.is Telur botninum náð
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

The evolution of the human mind!

Mahmoud Ahmadinejad er sérkennilegur forseti en hann hefur staðið í hárinu á Bandaríkjamönnum og svosem vakið athygli fyrir það. Þó er ég ekki sannfærð um að ameríska heimsveldið sé hrunið en geri ráð fyrir að verið sé að vísa til efnahagslegra hrakfara megin boðbera nýfrjálshyggjunnar í heiminum. Með ríkisaðgerðum Bandaríkjamanna til að sporna við spákaupmennsku og afleiðingum hennar sjá nú margir ofsjónum yfir að það verði einhvers konar kerfisskipti. Ég er ekki svo viss um það þó. En ætli þessi gagnslausa ofuráhersla á hættuna af kjarnorkuvæðingu Írana fölni ekki aðeins í öllu fjármálafárinu þar vestra nú um stundir. Enda náttúrulega hlægilegt þar eð bæði Indland, og Kína, Kórea jafnvel Pakistan og fleiri þjóðir í austurlöndum hafa þegar kjarnorkuvæðst.

Ef ég ætti að láta mig dreyma sé ég fremur fyrir mér að öfgarnar í einhverjum allsherjar trúarkerfum um tilhögun efnahagslegrar skipunar hverfi. Kommúnisminn féll, nýfrjálshyggjan og ofurtrúin á markaðsöflin víkur fyrir skynsamari áherslum.....En þá þarf ég að fara að biðja um stökkbreytingar á mannshuganum. Ætli maður geti óskað sér þess?


mbl.is „Heimsveldið er að hrynja"
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Fyrri síða | Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband