5.10.2007 | 10:28
Raddleysi í rigningunni!
Röddin í mér hvarf og eftir sit ég hjáróma með kurr sem brýtur sér leið um barkann og hefur sig til flugs út í hvolfið sem dimmraddað urg. ÆÆ! Rakinn í loftinu og haustið hefur heltekið raddböndin. Ég fæ mér echinea, c-vítamín, olífulaufstöflur en ekkert virkar. Ég djúsa gulrætur, rófur og haug af engifer, en allt kemur fyrir ekki. Leggst upp í rúm og fer í þagnarbindindi þangað til að mín hljómþýða íðilfagra rödd er endurheimt.
Meginflokkur: Lífstíll | Aukaflokkar: Dægurmál, Matur og drykkur | Facebook
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.