Fækkun ráðuneyta og útgöngubann í borginni!

Já nú byrja fjölmiðlar að spá í spilin um skipanir á stóla og tilhögun nýrrar minnihlutastjórnar. Ég tel afar skynsamlegt að fækka ráðuneytum eitthvað. Það er auðvitað spurning hver það verða. Ég giska á að Katrín Jakobsdóttir verði menntamálaráðherra og að Össur verði utanríkisráðherra. Ég gæti trúað að Steingrímur J. Sigfússon verði fjármálaráðherra. Annars er betra að vera ekki að spá of mikið í spilin á meðan þau eru svona óræð.

Annars er margt að gerast í pólitíkinni á meðan að almenningur horfir blindaður á hinar stórpólitísku útlínur. Þeir sem hafa áhuga á að líta sér nær ættu að skoða heimasíðu samtakanna um bíllausan lífsstíl.

www.billaus.is

Þar hafa ákvarðanir um framtíð strætó í för með sér, að því er virðist, útgöngubann í borginni!


mbl.is Hittast kl. 14 í dag
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: hreinsamviska

Fáðu þér flottan bol gegn Íhaldinu. Sjá nánar á síðunni hreinsamviska.blog.is

hreinsamviska, 27.1.2009 kl. 14:02

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband